Nýtt hús skóræktarfélagsins í Haukafelli
Um helgina sl. voru þeir Sigurður Karlsson og Björn Gunnlaugsson ásamt aðstoðarfólki að ganga frá undirstöðum undir hús skógræktarfélagsins í Haukafelli á Mýrum. Húsið er tilbúið og verður flutt á staðinn alveg á næstunni. Í húsinu verður snyrtiaðstaða, setustofa og aðstaða fyrir skógarvörð. Haukafell er orðinn vinsæll fjölskyldustaður, þar er búið að rækta mikið af plöntum á stóru svæði og komnir skjólgóðir staðir . Víðsýnt og fallegt er yfir að líta sé aðeins farið uppí brekkuna og auðvelt að finna góðar gönguleiðir um svæðið. Ef farið er inn með ánni sjást tóftir á árbakkanum af gamla Haukafellsbænum sem búið var í til 1880 en þá var bærinn fluttur frameftir, eins og sagt var og þar var búið til 1936.
Síðustu ábúendur í Haukafelli voru hjónin Vilhjálmur Guðmundsson og Guðný Jónsdóttir sem lengi bjuggu á Gerði í Suðursveit. Um 1880 og fram að aldamótum 1900 náði Fláajökull alveg að ánni og er líklegt að ábúandanum hafi ekki líkað að hafa jökulinn svona rétt við bæjardyrnar og áin farin að brjóta úr bökkum við túnið.
Haukafell er einn besti berja-tínslustaður Hornfirðinga og þar er oft mikið af bláberjum. Mikið af sætukoppum er komið á bláberjalyngið og það hlýtur að vita á góða berjasprettu í haust.





Skrifa athugasemd