Sól og hiti næstu daga
Það er ekki laust við að Hornfirðingar og líklegast landsmenn allir brosi hringinn yfir veðrinu þessa dagana. Samkvæmt spánni þá munum við njóta þess næstu daga og fáum nokkuð háar hitatölur sem geta orðið allt að 17 stig. Á Jökulsárlóni í morgun var hitastigið um 13 gráður og ekki blakti hár á höfði samkvæmt tali við Einar Björn staðarhaldara. Ferðastraumurinn þar hefur aukist jafnt og þétt og í morgun voru um 100 manns búin að fara út á lónið. Í Skaftafelli bar við sama tóninn, 11 stiga hiti og logn og sagði Sólrún í upplýsingamiðstöðinni þar væri óvenjumikið af fólki miðað við miðvikudagsmorgun og von á enn meira af fólki þangað í dag.
Samkvæmt spánni þá er hún fyrir Suðausturland til kl. 18 á morgun Austan 3-8 m/s og skýjað með köflum. Hiti 10 til 17 stig





Skrifa athugasemd