Úrval er af fjölbreyttri afþreyingarstarfsemi
Þetta var fyrsta kynnisferðin fyrir af mörgum sem Menningarmiðstöðin stendur að fyrir krakkana í sumar. Kominn er út bæklingur sem æskulýðs-og tómstundarráð Hornafjarðar gefur út. Þar kemur fram að sumarstarfið í ár er fjölbreytt og ættu allir unglingar að finna sitthvað við sitt hæfi, eitthvað sem hæfir kunnáttu og hæfni hvers og eins.
Meira úrval er af fjölbreyttri afþreyingar starfsemi fyrir unga sem aldna í Sveitarfélaginu Hornafirði en verið hefur og eru það íþróttafélögin, Menningarmiðstöðin, Ferðafélag A-Skaft. og sveitarfélagið ásamt fleiri félögum og klúbbum á svæðinu sem standa fyrir henni.
Tökum þátt í þessari sumarstarfsemi og stuðlum um leið að aukinni afþreyingarstarfsemi í sveitarfélaginu.





Skrifa athugasemd