Júní
Hólmsá, varnargarðarnir koma austan við ánna
Hólmsá, varnargarðarnir koma austan við ánna

11.06.2004 Júní

Vegasamband komið á Suðurfjörur

Nú er búið er að ýta upp varnargörðum austan Hólmsá og liggur akvegur eftir þeim út á fjörur. “Eftir er að slétta og laga veginn en hægt að fara hann á flestum bílum” segir Þrúðmar Sigurðsson. Samkomulag varð milli Landgræðslunnar og Sveitarfélags Hornafjarðar um gerð varnargarða og vegar niður með Hólmsá að austan og út á Suðurfjörur og er áætlaður kostnaður við verkið um 6 milljón kr. Varnargarðarnir eru tveir, efri garðurinn frá Mjöðm út á Hlöðholt er 650 m langur, meðalhæð 1,60 m og er hann grjótvarinn. Frá Hlöðholti út í Skinney er 600 m langur garður sem ýtt var upp og verður sáð í hann og látið reyna á hvort það dugir ekki. Frá Skinney út á fjörur þarf ekki garð þar sem Hólmsá hefur grafið sig þar vel niður og er orðið 6-7 m dýpi við útfallið. Landgræðslan hefur séð um framkvæmd verksins.

Austan varnargarðanna mun gróa upp rúmlega 1100 hektara svæði og óvíst að nokkuð þurfi að sá í það. Landgræðslan er einnig að byggja varnargarða við Jökulsá í Lóni, lokið er við garð sem liggur frá þjóðveginum til austurs og byrjað á öðrum garði með sömu stefnu, mikið utar á aurunum. Þessir garðar eiga að varna því að Jökulsá fari vestur í Laxá eins og hún hefur gert undanfarið og marka henni ákveðinn farveg.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica