Sjóflugvélin hélt áleiðis til Bandaríkjanna
Hornafjarðarflugvöllur er einn af alþjóðlegum flugvöllum og þykir ákjósanlegur fyrir ferjuflugvélar að millilenda og taka eldsneisti. Það færist í vöxt að sömu flugmennirnir kjósa að millilenda hér og segja þeir það vera vegna staðsetningar flugvallarins og þess bónus sem þeir fá vegna þjónustulipurð starfsmanna flugvallarins. Í morgun hélt héðan sjóflugvél sem var frá Wick í norður Skotlandi áleiðis til Bandaríkjanna “Það er mikið og gott samstarf milli Hornafjarðar og Skotlands á þessu sviði Ásgeir Núpan Ágústsson hjá flugturninum á Höfn.
Afgreiðslubúnaðurinn fyrir eldsnetið er frá Skeljungi og nú er verið að endurnýja þann búnað af því tilefni eru hér starfsmenn frá Skeljungi og Vélsmiðju Hornafjarðar sagði Ásgeir að lokum.




Skrifa athugasemd