30 ára afmæli Skeiðarárbrúar í júlí
Þann 14. júlí nk. eru liðin 30 ár frá opnun Skeiðarárbrúar. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli segir að þessa merka áfanga í íslenskum samgöngumálum verði minnst á verðugan hátt og er undirbúningur hátíðarinnar hafinn. Göngubrú yfir Morsá er alveg að verða tilbúin, aðeins smádútl eftir við hana segir Ragnar og hún verður vígð á brúarafmælinu. Hópur sjálfboðaliða vinnur við göngustíga og pallasmíði og byrjað er á að endurgera gamalt hesthús sem er ofan við Bölta. Hesthúsið er eitt af þessum gömlu skaftfellsku hesthúsum og þegar það verður komið í sitt gamla form, sem vonandi tekst fyrir 14. júlí, verður það til sýnis.
Göngustígurinn frá þjónustumiðstöðinni inn að Skaftafellsjökli er lang vinsælasti og fjölfarnasti göngustígurinn í þjóðgarðinum. Bundið slitlag var lagt á stíginn fyrir tveim árum og gjörbreytti það aðgengi fyrir fatlaða sem komast þar auðveldlega á hjólastólum sínum. Þarna fer fólk með barnavagna og eldra fólk sem á erfitt með gang nýtur þess að fara þessa leið. Ragnar segir að Skeiðará sé aftur farin að renna í farveg sinn sem þornaði upp í vor, en hún sé samt óttalegur ræfill þarna ennþá.





Skrifa athugasemd