Júní
Hreint ótrúlegt útsýni í svifvængjaflugi
Hreint ótrúlegt útsýni í svifvængjaflugi

16.06.2004 Júní

Námskeið í Svifvængjaflugi á Höfn

Fyrirhugað er að halda námskeið í Paragliding eða svifvængjaflugi eins og það heitir á góðri íslensku. Námskeiðið verður haldið í nágrenni Hafnar. Það eru bræðurnir Jón Þorbjörn og Gísli karl Ágústssynir sem standa fyrir þessu námskeiði í samvinnu við Svifdrekafélag Reykjavíkur sem sendir hingað mjög reyndan kennara. Á námskeiðinu er farið í helstu atriði sem varða svifvængjaflug. Þátttakendum er veitt innsýn í flugeðlisfræði, auk þess sem uppbyggingu og stjórnun eru gerð góð skil en ekki síst skemmtilegar verklegar æfingar. Hægt er að fljúga á svifvængi næstum því hvar sem er í Sveitarfélaginu og því meira sem uppstreymið er því betra. Jón Þorbjörn segir að það reyndir svifvængjaflugmenn fari upp í 1000 metra hæð og sé það lítið mál þar sem uppstreymi er gott.

Þeir sem hafa áhuga á þessu námskeiði sem stefnt er að halda í lok þessa mánaðar geta haft samband við Gísla Karl í síma 897 5627 eða Jón Þorbjörn í síma 897 9174

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica