Lóðsinn hnubbaði aðeins í Þóri SF
Hornafjarðarbátar hafa alltaf, þegar veður hefur leyft, boðið upp á siglingu út fyrir Ós. Smá breyting varð á þessu á sjómannadaginn síðasta en þá var siglingu frestað til dagsins í dag. Upp úr kl. 13 sigldu sex bátar úr höfninni, að lóðsinum meðtöldum sem til öryggis fylgdi bátunum. Siglt var út á miðgrynnsli út undir Hvanneyjarsker þar sem snúið var til baka. Á leiðinni í land, tók einn bátanna, Þórir SF niðri við garðinn utan við bræðsluna.
Sem betur fer reyndist þetta ekki neitt strand og þegar Lóðsinn hafði aðeins hnubbað í Þóri hélt hann áfram inn að bryggju og skilaði sínum farþegum í land.
“ Þetta var bara allt að því að vera skemmtilegt og tilbreyting fyrir farþegana” sagði Ólafur hafnsögumaður.
Allmargir farþegar voru með hverju skipi . Veður var bjart, smá vindur og fagurt um að litast





Skrifa athugasemd