165 konur tóku þátt í kvennahlaupinu
Hlaupið á Höfn heppnaðist mjög vel og voru það um 165 konur tóku þátt í hlaupinu og líklega fleiri þar sem það voru ekki allir sem skráðu sig en tóku samt þátt í hlaupinu sagði Svafa Mjöll Jónasar eftir hlaupið í morgun. Hún vildi fyrir hönd aðstandenda hlaupsins koma fram þakklæti til þeirra sem mættu og fyrir frábæra þátttöku. Veðrið á Höfn var með besta móti, ekki dropi úr lofti og voru hlauparar á öllum aldri. Allir fengu bol og verðlaunapening og Fjóla Rafnkelsdóttir fékk blómvönd fyrir þátttökuna en hún var sú elsta í hópnum. Um 50 konur sem voru staddar á ættarmóti í nágrenni Hafnar sóttu 50 boli og ætluðu þær að hlaupa kvennahlaupið þar.
Búið er að setja inn í myndasafn myndir frá hlaupinu, þær verða einnig á SkjáVarpi í kvöld og sunnudagskvöld milli kl. 19 – 21.




Skrifa athugasemd