Júní
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skála með sínu fólki. Fagnað verklokum og opnun göngubrúar við Eskifell. Guðni Artúrsson brúarsmiður fyrir miðri mynd.
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skála með sínu fólki. Fagnað verklokum og opnun göngubrúar við Eskifell. Guðni Artúrsson brúarsmiður fyrir miðri mynd. @Stafafell
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skála með sínu fólki. Fagnað verklokum og opnun göngubrúar við Eskifell. Guðni Artúrsson brúarsmiður fyrir miðri mynd. @Stafafell

21.06.2004 Júní

Lengsta göngubrú landsins formlega opnuð

Lokið er við smíði lengstu göngubrúar landsins, hún er yfir Jökulsá í Lóni og var formlega opnuð af samgöngumálaráðherra Sturlu Böðvarssyni 16. júní sl. Brúin sem er 95 metra löng og tveggja metra breið er við Eskifell. Brúarvinnuflokkur frá Reyðarfirði sá um verkið.
Með tilkomu brúarinnar opnast gönguleið úr Stafafellsfjöllum inn á Lónsöræfi og meiri möguleikum á gönguferðum um þetta svæði. Tilvalið er t.d. að ganga frá Stafafelli inn Stafafellsfjöll yfir göngubrúna og yfir í Eskifell þar sem er tjaldstæði og næsta dag væri svo gengið inn í Kollumúla. Gunnlaugur Ólafsson í Stafafelli segir að unnið verði að stígagerð sitthvoru megin brúarinnar á næstu vikum og kemur 15 manna hópur frá Sjálfboðaliðum um náttúruvernd og aðstoðar við verkið í lok mánaðarins. Brúin er byggð í samræmi við stefnumörkun landeigenda í útivistar- og ferðamálum frá árinu 1997. Formleg vígsla á meginleið úr byggð inn í Víðidal (rúmir 30 km) verður um Verslunarmannahelgina.
Í því tilefni verður skipulögð útivistar- og skemmtidagskrá sem gengur undir heitinu "Göngutaktur - Stafafelli". Skipuleggjendur eru Gunnlaugur B. Ólafsson gönguhrólfur frá Stafafelli og Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font) hljómlistarmaður.

Gunnlaugur segir að nafnið Stafafell vísi til landfræðilegra eiginleika jarðarinnar, að vera sundurskorin af ám og gljúfrum. "Stafur" merkir fjalllendi sem skagar fram á milli dala. Jörðin er samsett af þremur slíkum stöfum. Sá innsti liggur milli Jökulsár og Víðidalsár og endar í odda sem nefnist Nes við Kollumúla. Þar hefur verið skipulagt skála- og tjaldsvæði. Þar er Múlaskáli og endurbyggður gangnamannakofi, samtals gistipláss fyrir um 40 manns. Hinum megin við Jökulsá er svæði sem liggur frá vatnaskilum á Vatnajökli, sem jafnframt eru mörk milli Lóns og Nesja og endar í Eskifelli. Það skagar fram á milli Jökulsár og Skyndidalsár. Í Ásum við Eskifell hefur verið skipulagt annað skála- og tjaldsvæði. Þar verður í sumar komið fyrir tveimur gistigámum, með svefnplássi fyrir 15-20 manns.
Framan við Kollumála og austan við Kjarrdalsheiði og Eskifell er þriðji og fremsti hlutinn sem nær frá fjallseggjum sem aðgreina Lón og Álftafjörð, sem endar í byggð framan undir Heimafjalli sem liggur milli Hlíðarár og Jökulsár. Þar gerir skipulag ráð fyrir að byggð verði þjónustumiðstöð, en nú er þar gistipláss fyrir um 40 manns. Með nýrri göngubrú yfir Jökulsá í Lóni við Eskifell hafa þessir þrír "stafir" verið tengdir saman og Stafafell er orðin samfelld heild í útivistar- og ferðamálum í samræmi við stefnumörkun landeigenda frá 1997. Eskifell og Kollumúli höfðu áður verið tengd saman með göngubrú yfir Jökulsá við Kollumúla frá 1953.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica