Júní
Geir Þorseinsson byggingarverktaki skoðar vöruúrvalið í nýju búðinni
Geir Þorseinsson byggingarverktaki skoðar vöruúrvalið í nýju búðinni

22.06.2004 Júní

Vínbúðin á Höfn hefur opnað í nýju húsnæði

Í morgun kl.11 opnaði Vínbúðin á Höfn í glæsilegu nýju húsnæði að Vesturbraut 1, nánar tiltekið í Nýju Esso þjónustumiðstöðinni. Mikið úrval er af víni á nýja staðnum og hefur vörutegundum verið fjölgað úr 170 í 200. Sú nýbreytni verður að Vínbúðin mun vera með kynningar á léttvínum svo sem víni sem hentar með grillmatnum. Í vínbúðinni er búið að setja upp aðstöðu fyrir viðskiptavinina og geta þeir pakkað inn víni í gjafavöruumbúðir sé það ætlað til gjafa. Í búðinni velur viðskiptavinurinn sjálfur vínið úr hillunni eins og gert var á gamla staðnum. Útibússtjóri Vínbúðarinnar á Höfn er Elín Þórdís Heiðarsdóttir

Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 11 til 18, föstudaga frá 11-19 og laugardaga frá kl. 11-14.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica