Kolmuninn búbót fyrir bræðsluna
Undanfarna daga hafa Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvaldsdóttir skip Skinneyjar Þinganess landað kolmunna hjá fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey á Hornafirði. Búið er að bræða 4000 tonn af kolmunna og á Björn Traustason bræðslustjóri von á áframhaldandi löndunum á meðan kolmunnavertíðin er. Heimild er fyrir veiði á 720 þúsund tonnum af kolmunna á þessu ári. Skipin hafa verið að veiðum innan íslensku lögsögunnar og er um 10 tíma sigling til Hornafjarðar. Kolmunninn er unninn bæði í lýsi og mjöl og tekur bræðsla á þúsund tonnum tvo sólarhringa.
Björn bræðslustjóri segir þetta algjöra búbót fyrir bræðsluna á þessum tíma þegar ekkert sé um að vera og meðan kolmunnaveiði er svona góð, eins og verið hefur, þá er hann bjartsýnn á að fá svona aukavertíð.





Skrifa athugasemd