Júní
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank

24.06.2004 Júní

Breskir sjálfboðaliðar í þjóðgarðinum

Undanfarið hafa breskir sjálfboðaliðar unnið hörðum höndum í þjóðgarðinum í Skaftafelli og skila góðu verki, þetta er harðduglegt fólk. Það er heldur ekki slæmt umhverfi sem við bjóðum þeim að vinna í hér upp við Svartafoss segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Búið er að endursmíða göngubrúna við Svartafoss einnig er búið að smíða göngupalla í austurheiðinni og nú sem stendur eru vaskar konur að aðstoða Ara Óskar hleðslumeistara við að hlaða upp gamla hesthúsið við Bölta. Aldrei hafa jafnmargir sjálfboðaliðar unnið í þjóðgarðinum og í sumar og það er gaman að fylgjast með þessu unga fólki og hvað það vinnur vel sín störf.

“Það er enginn hörgull á verkefnum hér í þjóðgarðinum hjá okkur og áfram verður haldið að gera gott aðgengi um svæðið sem gerir fólki auðveldara að komast um þjóðgarðinn og njóta þeirrar miklu náttúrufegurðar sem hér er” segir Ragnar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica