6. flokkur Sindra fór til Vestmannaeyja
Þeir lögðu af stað héðan eftir hádegi í gær og var ferðinni heitið til Vestmannaeyja þar sem þeir taka þátt í hinu árlega Shellmóti. Ferðin gekk mjög vel þrátt fyrir austan kalda eins og skipsstjórinn á Herjólfi komst að orði, enginn varð sjóveikur en það voru teknar sjóveikistöflur fyrir ferðina svona rétt til öryggis. Að sögn Gísla Más Vilhjálmssonar aðstoðarþjálfara var hópurinn kominn til Eyja um 22:30 og þá beið þeirra matur sem var mjög vel tekið eftir ferðalagið. 6 flokkur karla eru drengir 9 og 10 ára og keppa þeir í Eyjum í dag og næstu daga og halda síðan heim á mánudag. Í ferðina fóru nokkrir foreldrar með til halds og trausts eins og venjan er i slíkum ferðum.
C-lið Sindra er búið að keppa við ÍA í morgun og töpuðu fyrir þeim 3-1, B-liðið keppti við Hauka og vann leikinn 3-1, Mikið er af fólki í Eyjum þessa dagana og eru um 2500 manns í tengslum við Shellmótið.





Skrifa athugasemd