Júní
Minjagripasalan í Skaftafellsstofu @Ragnar Frank
Minjagripasalan í Skaftafellsstofu @Ragnar Frank

28.06.2004 Júní

Gagngerar breytingar á Skaftafellsstofu

Skaftafellsstofa hefur verið opnuð aftur eftir gagngerar breytingar og hefur stofan verið stækkuð um það rými sem veitingastofan og verslunin voru í. Veitingasölu og matvöruverslun var hætt en í þess stað er þar smá kjörbúðarhorn með nauðsynlegustu matvöru og kaffihorn. Minjagripaverslunin hefur verið stækkuð,einnig er allt sýningarplássið í stofunni. miklu rúmbetra. Búið er að setja upp tölvubúnað og nettenging svo fólk geti kíkt inn á veraldarvefinn og t.d. komist í póstinn sinn.

Grillaðstaða hefur verið endurbætt og nú eru komnar þvottavélar og þurrkari í þjónustumiðstöðina. Reiðhjólaleiga verður í þjónustumiðstöðinni í sumar og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að byrjað verði með fá hjól fyrst og sjá hvernig viðtökurnar og þörfin fyrir þessa þjónustu verður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica