Humarhátíðin fór vel af stað
Humarhátíð Hornfirðinga hófst með hverfahátíðum kl 17 og kl.19.30 var safnast saman við Heppuskóla áður en haldið var á hafnarsvæðið þar sem Jónas Kristjánsson ráðherra setti hátíðina. Felix Bergsson tók síðan við stjórninni sem hann gerði með glæsibrag. Hann söng og kynnti skemmtiatriði og var hreint út sagt alveg frábær. Hverfin voru hvert með sitt skemmtiatriði og var þeim vel fagnað og verður dómnefnd vandi á höndum með að velja besta hverfið því hvert skemmtiatrið var öðru betra. Karlakór Hornafjarðar söng nokkur lög eins og þeim einum er lagið og því næst var það Eyjamaðurinn Árni Johnsen sem stjórnaði bryggjusöng með prýði.
Veður var mjög gott, logn og milt. Þetta hefur verið sannkölluð fjölskylduhátíð og í kvöld verður víða dansað fram á nótt.





Skrifa athugasemd