Júlí
Sveina, Þórdís og Ómar við Humarsöluna á Markaðstorginu
Sveina, Þórdís og Ómar við Humarsöluna á Markaðstorginu

03.07.2004 Júlí

Humar hvar sem litið er

Það fer ekki á milli mála að á Höfn er Humarhátíð, hvar sem litið er þá er hægt að fá humar í einu eða örðu formi. Veitingarstaðirnir á Höfn kappkosta við að bjóða upp á úrval humarrétta hver öðrum betri. Humar frá Skinney- Þinganesi er til sölu í verslun 11-11 í Miðbæ og humar frá Bestfiski er seldur á Markaðinum í Hornabæ og á bryggjusvæðinu.  Humar verður grillaður af Karlakórnum Jökli á bryggjusvæðinu í dag kl.16. Fyrir þá sem vilja sjá hann lifandi þá er hann til sýnis í Pakkhúsinu í dag frá kl. 13-18. Það hefur orðið mikil breyting á síðustu árin á Höfn hvað varðar úrval af humar, eftirspurn eftir humarréttum á veitingarstöðum hefur stóraukist og því má segja að Höfn standi vel undir nafni sem humarbærinn.

Fyrir sælkerana sem kaupa humarinn frosin og vilja elda hann á einhvern sérstakan hátt þá er að finna á humarvefnum úrval uppskrifta til að velja úr. Ef þú lesandi góður býrð yfir humaruppskrift sem þú vilt deila með alþjóð þá er það þegið með þökkum. Hægt er að senda á netfangið uppskriftir@humar.is.
 
Humaruppskriftir

  

  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica