Júlí
Blaktandi segl skútunnar í Hornafjðarhöfn
Blaktandi segl skútunnar í Hornafjðarhöfn

05.07.2004 Júlí

New Nork - Höfn í Hornafirði

Blaktandi segl í háu mastri skútunnar sem er í Hornafjarðarhöfn mátti sjá víða úr fjarska. Þar er á ferðinni Þýskur auðkýfingur sem hér hafði viðkomu til að fara upp á jökul og á Jökulsárlón. Eins verður skipt um áhöfn á skútunni, nýir fljúga hingað frá þýskalandi og gamla áhöfnin heldur utan. Að sögn eins skipverjans þá er sá háttur hafður á að eigandi skútunnar á mikið af vinum sem eru skipstjórar og stýrimenn, þeir skiptast á að sigla með auðkýfinginn meira fyrir ánægjuna en peningana. Skútan lagði upphaflega af stað frá Þýskalandi, þaðan til New York, hafði viðkomu á nokkrum stöðum áður en hún fór til Skotlands, þaðan til Færeyja og síðan Hornafjarðarhöfn.

Fá Hornafjarðarhöfn heldur skútan til Reykjavíkur og þaðan til Grænlands áður hún heldur til Þýskalands.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica