Júlí
Vinningshafar á Humarhátíðarmótinu @Sigurbjörg Karen Hákonardóttir
Vinningshafar á Humarhátíðarmótinu @Sigurbjörg Karen Hákonardóttir

06.07.2004 Júlí

Vallarmet sett á Silfurnesvelli

Humarhátíðar-golfmótið fór fram á Silfurnesvelli um helgina og var keppt í kvenn- og karlaflokki. Á mótinu var setti Heiðar Davíð Birgirson frá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ vallarmet, hann bætti gamla metið um eina holu og fór 18 holur á 60 höggum. Skinney-Þinganes bauð upp á verðlaunin á mótinu að sjálfsögðu voru m.a. humar á grillið. 32 manns tóku þátt í mótinu. Úrslit í karlaflokki urðu þau að Kristinn Þór Guðlaugsson var í fyrsta sæti með 38 punkta, Björn Malmquist í öðru með 36 punkta og Heiðar Davíð Bragason í því þriðja með 35 punkta. Í kvennaflokki var Arnheiður Jónsdóttir í fyrsta sæti með 30 punkta., Guðný Helgadóttir í öðru með 24 punkta og Helga B Jóhannesdóttir með 23 punkta.

Miðvikudagsmótaröðinni er nýlokið en þar var spilað í 6 miðvikudaga og voru það 4 bestu dagarnir sem töldu stigin. Það var Hornfirðingurinn Sigurður Guðnason (Siggi lögga) , sem var sigurvegari miðvikudagsmótanna. Næstkomandi laugardag fer fram Opin kerfi mót sem er punktamót og verðlaun verða í boði Opinna kerfa. Mótið hefst kl.10

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica