Júlí
Létt grín á föstudegi, Brad Pitt
Létt grín á föstudegi, Brad Pitt

08.07.2004 Júlí

Létt grín á föstudegi veldur smá fjaðrafoki

Eins og flestir lesendur vefsins hafa tekið eftir þá hafa verið grínfréttir af og til á föstudögum undir liðnum “Létt grín” þar hefur verið sagt frá einhverju merkilegu og birt mynd sem unnin hefur verið í myndvinnsluforriti af viðburðinum með grínfréttinni. Um Humarhátíðina fór ein slík í loftið undir fyrirsögninni “Brad Pitt á humarhátíð” og fylgdi mynd með þar sem Brad Pitt, Óðinn og Gísli, Hótel Hafnarmenn voru fyrir framan Heinina á Hátíðarsvæðinu. Stuttu eftir að fréttin fór í loftið fóru símarnir að glóa á Hótelinu þar sem sjónvarps- og útvarpsstöðvar voru að leita að leikaranum og var þeim þá tjáð að þetta væri Létt grín sem vefurinn væri með á föstudögum. Tókum menn því vel og viðurkenndu að hafa ekki lesið grínfréttina alla og því ekki tekið eftir að þetta var grínfrétt.

Áður en Hornafjörður.is fór af stað með “Létt grín “ þá var gerð smá könnun sem fólst í því að kanna hvort lesendum vefsins finnist rétt að frétta og upplýsingavefur sem þessi myndi birta grínfréttir og var niðurstaðan úr þeirri könnun sú að undantekningarlaust fannst mönnum það í lagi sérstaklega þar sem “Létt grín” er merkt við grínfréttina. Niðurstaðan var því sú að farið var af stað með grínið. Ef “Létt grín” birtist þá er það ávallt á föstudögum og þegar klikkað er á grínfréttina þá fer það ekki á milli mála að um er að ræða “Létt grín”.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica