Veðurguðirnir hliðhollir Hornafirði
Síðustu daga hafa veðurguðirnir verðið okkur sérlega hliðhollir, sól upp á hvern dag og útilit fyrir sólardögum framunda. Hiti hefur rokkað frá 13 gráðum og uppúr. Í Stafafellsfjöllum í Lóni í fyrradag mældist hitinn 24 gráður hjá Gústa Tobba og toppaði Öddi bróðir það um 2 gráður en að hans sögn mældist hitinn hjá sér 26 gráður. Ef fram sem horfir má reikna með því að einhver fyrirtæki fari að loka vegna veðurs hluta úr degi. Gróður skartar nú sínu fegursta og gerir umhverfið enn flottara. Á Jökulsárlóni eru núna 17 gráður og nánast logn, mikil umferð síðustu daga að sögn Einars Björns og útilit fyrir mikilli aukningu næstu daga.
Í Skaftafelli er logn, heiðskýrt og 19 stiga hiti. Að sögn Auðar í upplýsingamiðstöðinni hefur veðrið þar verið mjög gott síðustu daga og nokkuð jöfn umferð ferðamanna. Samkvæmt veðurspánni þá á veðrið að vera sviðað næstu daga og einna besta hér á landinu.





Skrifa athugasemd