Stangveiðimót út af Hornafirði
Það er ekki á hverjum degi sem haldið er sjóstangveiðimót á Hornafirði en eitt slíkt fór fram um helgina. Mótið var á vegum Íslandsdeildar EFSA sem er Evrópusamband sjóstangveiðimanna. Félagarnir deildarinnar eru 43, bæði konur og karlar sem búa vítt og breytt um landið. Þetta er þriðja mótið sem haldið er hér á landi, í fyrra var það haldið í Ólafsvík og þar áður á Sauðárkróki. Fyrr á þessu ári hafði Skarphéðinn Ásbjörnsson formaður félagsins samband við Snorra Aðalsteinsson hjá Smábátafélaginu á Hornafirði og kannaði möguleika á því hvort hér væri hægt að halda þetta mót, fékk strax mjög jákvæð viðbrögð og innan tíðar var Snorri búinn að útvega skipstjóra og báta í keppnina sem voru Grétar Vilbergsson á Silfurnesi, Unnsteinn Þráinsson á Sigga Bessa og Óskar Guðmundsson á Kalla.
Farið var á veiðar að laugardagsmorguninn 10. júlí klukkan 6:00, byrjað var að veiða strax á leiðinni út og veiddi Óskar Guðmunds þar marhnút, sandkola og rauðsprettu í Mikleyjarálnum. Keppnin fór að mestu fram á Hálsasvæðinu og var veiðum hætt klukkan 14:00 og þá haldið til lands. Þegar verið var að landa og skrá stigin á hafnarbakkanum, dreif þar að ferðamenn sem fylgdust með því sem þar var um að vera og mynduðu stangveiðimennina ásamt aflann í bak og fyrir.
Veitt voru verðlaun sem var bikar fyrir, stærsta fisk hverrar tegundar, stærsta fisk mótsins, stigahæstu keppendur í karla og kvennaflokki, fyrsta, annað og þriðja sæti og fengsælustu skipstjórana.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
Í karlaflokki:
1. sæti, Guðbjartur Gissurarson, Reykjavík
2. sæti, Skarphéðinn Ásbjörnsson, Blönduósi
3. sæti, Auðunn Stefnisson, Siglufirði
Í kvennaflokki
1. sæti, Sigríður Kjartansdóttir, Bolungarvík
2. sæti, Sigurbjörg Jóhansnesdóttir, Kópavogi
3. sæti, Katrín Gísladóttir, Vestmannaeyjum (Afi hennar var Binni í gröf)
Veitt voru verðlaun fyrir stærsta fiskinn af hverri tegund:
Stærsta karfann veiddi Arnþór Sigurðsson
Stærstu keiluna veiddi Ingólfur Örn Guðmundsson
Stærsta marhnútinn og rauðsprettuna veiddi Sigríður Kjartansdóttir
Stærstu lýsuna veiddu Skarphéðinn Ásbjörnsson og Kristbjörn Rafnsson, fiskarnir hjá þeim voru báðir 57 cm upp á millimeter.
Stærsta sandkolann veiddi Arnþór Sigurðsson
Stærsta steinbitinn veiddi Guðbjartur Gissurarson
Stærsta ufsann veiddi Kristbjörn Rafnsson
Stærstu ýsuna veiddi Anna Dóra Garðarsdóttir
Stærsta þorskinn veiddi Sigurður Erlendsson og var það jafnframt stærsti fiskur mótsins, hann var 99 cm sem er frekar stór þorskur.
Fengsælasti skipstjórinn
1. sæti, Óskar Guðmundsson á Kalla SF
2. sæti, Unnsteinn Þráinsson á Sigga Bessa SF
3. sæti, Grétar Vilbergsson á Silfurnesi SF
Þrír voru jafnir með flestar tegundir sem voru samtals 8, Skarphéðinn Ásbjörnsson vann á stigafjölda og í 2. sæti var Sigríður Kjartansdóttir og í 3. sæti Þórir Sveinsson
Eftir að búið var að vigta og taka myndir var gert að aflanum og hann settur á Fiskmarkaðinn. Verðlaunaafhendingin fór fram á veitingastaðnum Víkinni.





Skrifa athugasemd