Júlí
Kartöflugarðarnir við Laxá í Nesjum
Kartöflugarðarnir við Laxá í Nesjum

14.07.2004 Júlí

Nýjar soðnar kartöflur í pottinn

Útlit er fyrir mjög góða uppskeru hjá kartöfluræktendum í Hornafirði, einhverjir rétt byrjaðir eða við það að taka upp. Við erum farin að taka upp kartöflur til heimilisins og byrjum á laugardaginn að taka upp til að senda í verslanir segir Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Við byrjum á að taka upp gullaugað og endum á premíunni því hún er best til matar þegar hún er orðin gömul. Mér finnst kartöflurnar vera stærri núna enda hefur tíðarfarið verið einstakt síðan sett var niður í vor. Talsvert meira var sett niður af útsæði á Seljavöllum í vor en áður og meira sett undir plast. Það eina sem uppá hefur komið er að vætu vantaði um tíma en slíkt er óvanalegt í Hornafirði.

Kartöfluneytendur urðu oft varir við, af uppskerunni í fyrra að kartöflur sem voru mjölmiklar voru gjarnar á að springa sundur í suðunni. Birna vissi ráð við því og það er að setja eina matskeið af fínu salti í vatnið þegar kartöflurnar eru soðnar, allavega hefði það talsvert að segja.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica