Fiskvinnslan í góðum gír
Sólin leikur nú við Hornfirðinga, smábátarnir fóru á sjó í morgun eftir nokkra daga brælu. Humarbátarnir eru nú flestir komnir í frí og mun vinnslan hjá Skinney-Þinganes loka á mánudag þegar farið verður í mánaðar sumarfrí eins og undanfarin ár. Svona rétt fyrir sumarfrí þá er komin hefð á að stafsfólk Skinney-Þinganess fer saman í útileigu og að þessu sinni verður farið í Freysnes, þar verður m.a. farið út í Ingólfshöfða og að sjálfsögðu borðað saman. Saltfiskvinnsla fyrirtækisins mun ekki loka vegna sumarfría þar sem trillubátar halda áfram að landa en þeir hafa verið að veiða mjög vel undanfarið. Hjá Bestfiski er nú unnið alla daga og segir Sívar Árni að það sé útlit fyrir að svo verði áfram. Hjá fyrirtækinu landa nú 11 bátar.
Spáin er nokkuð góð framundan, hæg austlæg átt með hitastig frá 9-16 gráður og búast má við smá gróðurskúrum.





Skrifa athugasemd