Júlí
Húnaröstin við bryggju
Húnaröstin við bryggju

17.07.2004 Júlí

Húnaröstin seld til niðurrifs

Húnaröstin SF 550, eitt af skipum Skinneyjar Þinganess, hefur verið seld til niðurrifs og munu nýjir eigendur sigla henni til Danmerkur þar sem skipið fer væntanlega í brotajárn.
Aðalsteinn Ingólfsson hjá Skinney Þinganesi segir að verið sé að undirbúa skipið fyrir siglinguna til Danmerkur. Húnaröstin var áður í eigu Borgeyjar og var mikið aflaskip en árið 2001 að lokinni loðnuvertíð var skipinu lagt. Húnaröstin hét fyrst Gissur Hvíti og var smíðaður í Sönderborg í Danmörku árið 1968 fyrir útgerðarmennina Óskar Valdimarsson og Ársæl Guðjónsson á Höfn.

Árið 1977 var byggt yfir skipið og það lengt 1989. Eftir að skipið var selt frá Hornafirði hét það Víðir NK, Húnaröst ÁR og Húnaröst RE þegar hún kom aftur til sinnar fyrstu heimahafnar og fékk SF 550.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica