Júlí
Hundarnir geta verið svo ljúfir og góðir
Hundarnir geta verið svo ljúfir og góðir

19.07.2004 Júlí

Hlýðninámskeið fyrir hunda á Höfn

Sporthöllin kannar nú áhuga Horfirðinga á hvort þeir vilji koma með hundana sína á námskeið þar sem þeim er kennt að hlýða. Stefnt er að því að halda námskeiðið í september ef næg þátttaka fæst sem eru 20 hundar. Hundaræktarfélag Íslands mun senda þjálfara til að kenna á námskeiðinu. Á slíkum námskeiðum eru m.a. kenndar hlýðniæfingar s.s. að kenna hundinum að setjast og leggjast, að bíða sitjandi, liggjandi og standandi og koma þegar kallað er. Hundinum er einnig kennt að ganga laus við hlið eigandans. Markmið með slíkum æfingunum er að kenna hundinum að einbeita sér að eigendum sínum, að hlusta og hlýða, og eigendum að stjórna hundinum á markvissan hátt og án líkamlegra átaka.

Það eru félagarnir Birgir Árnason og Valdemar Einarsson sem eru driffjaðrirnar á bak við námskeiðið. Að sögn Birgis þá er hefur verið smá misskilningur í gangi, að námskeið sem þessi séu bara fyrir hreinræktaða hunda, svo er ekki, þetta námskeið er fyrir alla hunda. Í framhaldi af námskeiðinu er ætlunin að stofna félagsskap hundaeigenda á Höfn með það að markmiði að gæta sameiginlegra hagsmuna þeirra. Upplýsingar og skráning á námskeiðið er hjá Sporthöllinni og í síma 478 2221.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica