Júlí
Laufey Guðmundsdóttir ferðaþjónustubóndi
Laufey Guðmundsdóttir ferðaþjónustubóndi

19.07.2004 Júlí

Gistiþjónustan í Lækjarhúsum og Króki

Hjónin Laufey Guðmundsdóttir og Guðlaugur Þorsteinsson í Lækjarhúsum í Suðursveit eru komin með gistiþjónustu í tveim húsum, gamla bænum í Lækjarhúsum og Króki. Við erum bara rétt að byrja í ferðaþjónustunni þessa dagana og það er strax orðið mikið að gera, sagði Laufey sem var á fullu við að taka á móti fólki þegar fréttamann vefsins bar þar að garði en hún gaf sér þó smá stund til að spjalla. Við höfum leigt þessi hús út til vinnuhópa sumrin á undan en ákváðum svo að skella okkur í ferðaþjónustuna og erum bara að ljúka við að fá allar leyfisveitingar og reglugerðir sem til þarf. Við erum með 24 gistirúm og svo er möguleiki á að bæta við í herbergi ef fólk er með börn. Þetta eru bæði uppbúin rúm og svefnpokapláss og það er eldunar aðstaða með öllum tilheyrandi búnaði í báðum húsunum. Það strax mikið búið að bóka þó við höfum ekkert auglýst þetta svo augljóst er að það er mikill skortur á gistiplássi hér á svæðinu yfir sumarið. Hinir ferðaþjónustuaðilarnir benda því fólki sem það getur ekki tekið á móti, á okkur og þetta er mjög góð byrjum og leggst vel í okkur segir Laufey.

Við erum búin að sækja um inngöngu í Ferðaþjónustu bænda og verður gengið frá því í haust og þá verðum við með í auglýsingarbæklingum fyrir næsta sumar segir Laufey.
Gisting hjá þeim kostar í tveggja manna herbergi með uppbúnu rúmmi 3700 kr á mann og svefnpokapláss 2300 kr. hvorutveggja með aðstöðu að eldhúsi.
Laufey og Guðlaugur sjá um þetta allt sjálf ásamt dætrunumTinnu og Völu og hafa áreiðanlega í nógu að snúast því auk þessa eru þau með 40 mjólkurkýr og 350 ær og svo er heyskapurinn á fullu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica