Júlí
Eyðibýlið á Horni
Eyðibýlið á Horni

22.07.2004 Júlí

Sannsöguleg og gerðist í sjóslysinu mikla 1873 við Vestra-Horn

Eins og fram hefur komið á vefnum verður Óperan Fósturlandsins freyja ( Le Pays), flutt í Hafnarkirkju laugardaginn 24. júlí kl.20.00. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Gunnar Guðbjörnsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Þá mun Elín Pálmadóttir kynna söguna fyrir gestum og verða sögumaður. Íslenskri þýðingu verður varpað upp. Þar sem sögusvið óperunnar er sannsögulegt og sótt í íslenskar heimildir og látin gerast á bænum Horni í Austur Skaftafellssýslu 1873 eftir sjóslysin hörmulegu við Vestra-Horn er gaman að fræðast um meira um hana.

Óperan “Fósturlandsins freyja” (Le Pays) eftir Joseph-Guy Ropartz, var skrifuð 1908-1910 og sett upp og flutt í Borgarleikhúsinu í Nancy 1912 og síðan 1913 í Opéra Comique í París við mjög góðar undirtektir, enda höfundurinn þekktur í tónlistarlífi Frakka. Þá dundi fyrri heimsstyrjöldin yfir og gaf fólki um annað að hugsa.

Óperutextinn er saminn upp úr smásögunni “L’;Islandaise”, sem gerist á Íslandi og kom út í smásagnasafni Le Goffics 1910. Í Frakklandi vakti Le Goffic, ásamt Pierre Loti og Anatole Le Braz, athygli á lífi og hlutskipti frönsku skútusjómannanna sem hurfu norður í höf og lifðu þar við eymd á miðunum við Ísland í sjö mánuði á ári hverju.

Tónskáldið, Joseph-Guy Ropartz, las smásöguna og bað Le Goffic um að semja óperutexta úr efninu. Tónlistin er gegnsamin í anda síðrómantíska tímabilsins og minnir um sumt á Puccini, Strauss og jafnvel Wagner. Hún er safarík, fögur og dramatísk.

Sögusviðið er sem fyrr segir Ísland. Frönsk fiskiskúta strandar í ofviðri að hausti til, austan við Höfn í Hornafirði. Einn maður, Tual að nafni, kemst af, en honum er bjargað af bóndanum á næsta bæ, Jörundi. Dóttir bóndans, Kata, hjúkrar franska sjómanninum til lífs. Þau verða ástfangin, en enginn prestur er í næsta nágrenni, svo þau sverja eiða við risastórt kviksyndi sem er mannskætt á sumrin. Verði tryggðarof, heita þau á kviksyndið að gleypa sig. Kata verður barnshafandi, en þrátt fyrir það fær Tual smám saman ólæknandi heimþrá þegar líður á veturinn. Snemma vors fréttir hann að frönsku skipin séu komin til Seyðisfjarðar og æðir af stað á hesti. Þar sem kviksyndið er enn ísi lagt, leggur hann út á það til að stytta sér leið. En skyndilegur hlýr sunnanþeyr bræðir ísinn á svipstundu. Tual og hesturinn berjast um á hæl og hnakka til að bjarga lífi sínu, en sökkva í kviksyndið í lok óperunnar við mikið hrafnagarg.

Hér á landi var ekki kunnugt um óperuna fyrr en nýlega. Disk með nýrri upptöku á henni með Fílharmóníuhljómsveit Luxemborgar rak á Íslandsfjörur sumarið 2002 með nokkuð einkennilegum hætti. Leifur Árnason, flugstjóri og tónlistarunnandi, rakst á diskinn í stórri plötubúð í Boston og færði Jónasi Ingimundarsyni hann.

Jónas varð strax hrifinn af óperunni. Og þar sem óperan ekki aðeins gerist á Íslandi heldur er efni og allur umbúnaður líka mjög íslenskur og þar segir frá frönsku Íslandssjómönnunum, hafði hann samband við Elínu Pálmadóttur, höfund bókarinnar Fransí Biskví. Elín kom á framfæri umfjöllun um óperuna og höfundana, sem báðir eru einmitt Bretónar frá því svæði sem sendi í heila öld þúsundir fiskimanna á Íslandsmið. Þaðan er einmitt aðalsöguhetjan sem verður hér skipreika. Elín hefur komist að því að
sagan er sannsöguleg, gerðist í sjóslysinu mikla 1873 við Vestra-Horn, þó að hún sé að sjálfsögðu færð í stílinn með skáldaleyfi.

Gegnum millisafnaþjónustu Þjóðarbókhlöðunnar fékkst gömul bók með smásögunni “L’;Islandaise” að láni og hefir Elín þýtt hana. Fer ekki á milli mála að höfundur hefur þekkt lifnaðarhætti á Íslandi á 19. öld furðulega vel gegnum frönsku sjómennina. Notar hann íslensk orð, eins og bær, baðstofa, vaðmál, fífa o.fl. og gefur skýringu á þeim neðanmáls.

Tónleikarnir á Fáskrúðsfirði 23. júlí og á Höfn í Hornafirði 24. júlí eru haldnir að frumkvæði Alberts Eiríkssonar, forstöðumanns safnsins “Fransmenn á Íslandi” á Fáskrúðsfirði og er hér um að ræða frumflutning á Íslandi.
Heimildir þessar eru fengnar hjá Albert Eiríkssyni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica