Útbreiðsla lúpínunnar
Þar sem áður voru gróðurlausir sandar og melar hefur lúpínan náð að breiða sig yfir stór svæði og er hún óneitanlega falleg meðan allt er í blóma. Ekki er lúpínan allstaðar æskileg og t.d. í þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur þurft að takmarka útbreiðslu hennar. Við Bæjarstaðarskóg hefur hún breitt sig út um allt og þar hefur her sjálfboðaliða tekið þátt í að fara á breiðurnar með sláttuorfum og sigðu. Frá náttúruverndarsjónarmiði þurfum við að hindra útbreiðslu lúpínunnar og er búið að slá um tíu hektara svæði við Bæjarstaðarskóg og setja í stórar sátur en svo er eftir að skoða hvað hægt er að gera við þær segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Hann segir að gott ráð til að hindra útbreiðslu sé að beita kindum á lúpínuna þegar hún er að byrja að vaxa á vorin.
Það væri kanski ráð að gera eins og víða er t.d. í Danmörku, Englandi og víðar út um heim þegar hindra þarf útbreiðslu óæskilegs gróðurs í skógrækt, þá eru víða leigðar kindur af bændum og þeim beitt á þessi svæði. Danskur bóndi sem á 40 kindur leigir þær á ákveðin svæði og friðlönd í 3 mánuði sem landeigandi greiðir fyrir og bóndi fær þannig tekjur af sínum kindum, einnig hefur íslenski hesturinn fengið þetta starf í Danmörku.
Væri ekki ráð að athuga hvort hægt væri að nýta blessaðar íslensku vegarollurnar svona?





Skrifa athugasemd