Júlí
Litbolti er mjög vinsæl íþrótt
Litbolti er mjög vinsæl íþrótt

23.07.2004 Júlí

Litboltafélagið með grænt ljós

Litboltafélag Hornafjarðar hefur loksins fengið öll tilskilin leyfi til þess að geta hafið starfsemi og er skráning í félagið þegar hafin. Verið er að undirbúa pöntun á þeim búnaði sem notast í litboltaleiknum en til þess þurfti földan allan af leyfum. Litbolti eða paintball eins og margir þekkja íþróttina er enn ein jaðaríþróttin sem bætist við hérna á Hornafirði. Íþróttin gengur út á skjóta mótspilara með sérútbúnum byssum og kúlum, innihald kúlanna er með öllu umhverfisvænt en þær springa þegar þær lenda á hörðum fleti. Skylda er að vera með grímu fyrir andlitinu til að hylja það fyrir kúlunum því mikill kraftur er í byssunum. Allskyns aukabúnaður er fáanlegur fyrir íþróttina sem gerir hana meira spennandi og skemmtilega.

Litboltafélaginu hefur verið úthlutað svæði hér í bænum þar sem félagsmenn geta stundað sitt áhugamál og er það Lyngey, tanginn sem er rétt fyrir aftan Stemmu 2. Þetta svæði er virkilega skemmtilegt fyrir litboltann og býður uppá marga möguleika. Eins og áður segir er skráning hafin í félagið, þegar eru 20 félagar búnir að skrá sig og er stefnt að því að gera fyrstu pöntun strax eftir helgi, verð á búnaðnum fer mikið eftir því hversu margir skrá sig í félagið og kaupa pakkann sem boðið er uppá. Því er mikilvægt fyrir þá sem hafa áhuga á að skrá sig í félagið og kaupa byssu og tilheyrandi búnað að kynna sér málin fyrir fyrstu pöntun því hún verður langstærst og hagstæðust fyrir alla.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi félagsins geta haft samband við einhvern úr stjórn félagsins, en hana skipa Sindri Ragnarsson, Gísli Örn, Gunnar Auðunn og Gunnar Ingi. Einnig verður fundur hjá félaginu n.k sunnudag kl.14:00 í Sindrabíói og eru allir sem hafa áhuga á þessari skemmtilegu og spennandi íþrótt hvattir til þess að mæta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica