Frjálsíþróttafólk USÚ gerir það gott á Sumarhátið UÍA
Nokkur hópur frjálsíþróttafólks hélt á Sumarhátið UÍA sem haldin var á Egilsstöðum um síðustu helgi. Liðsmenn USÚ sópuðu að sér verðlaununum á mótinu og þegar upp var staðið urðu þeir í öðru sæti í stigakeppni mótsins, sem verður að teljast góður árangur. Úlfljótsmenn áttu einnig þrjá bestu árangrana í drengjaflokki, besta afrek vann Fannar Blær Egilsson fyrir 800 m hlaup, annar í stigakeppninni var Bjarni M. Jónsson fyrir árangur sinn í langstökki og þriðji var Björn Ármann Jónsson fyrir árangur í kúluvarpi. Þessi þrír og fleiri íþróttamenn ætla að leggja land undir fót um verslunarmannahelgina og taka þátt í Unglingalandsmóti á Sauðárkróki, óskum við þeim góðs gengis.
Úrslit Sumarhátiðar er að finna á slóðinni hér. Nokkrir krakkar frá USÚ munu halda á Sauðárkrók þar sem þau taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ sem verður þar um verslunarmannahelgina.





Skrifa athugasemd