Júlí
Ragna Tómasdóttir og Erik Pedersen fyrir framan Kaupmannshúsið
Ragna Tómasdóttir og Erik Pedersen fyrir framan Kaupmannshúsið

27.07.2004 Júlí

Afi minn var Otto Tulinius kaupmaður

“Saga búsetu á Höfn í Hornafirði hófst með í að Otto Tulinius kaupmaður flutti verslun sína frá Papósi til Hafnar í Hornafirði sumarið 1897” segir í aðfaraorðum í bókinni Saga Hafnar í Hornafirði. Björn Jónsson og Sigríður Margrét Magnúsdóttir sem nú búa í Kaupmannshúsinu sem síðar fékk nafnið Kaupfélagshúsið fengu heimsókn um helgina, þar voru á ferðinni Ragna Tómasdóttir ásamt manni hennar Erik Pedersen, “Afi minn var Ottó Tulinius kaupmaður og okkur langaði að skoða húsið sem hann bjó í og því erum við hingað komin” sagði Ragna. Otto bjó í húsinu   frá 1897 til 1901, en þá flutti hann frá Höfn til Akureyrar. Ragna og Erik hafa búið í Danmörku frá 1958 en tala mjög góða íslensku þrátt fyrir að hafa búið öll þessi ár í Danmörku.

Otto Tulinius á ekki afkomendur á Hornafirði en þeir búa flestir á Akureyri og í Reykjavík. Otto og Valgerður Friðriksdóttir kona hans áttu alls 6 börn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica