Júlí
Herdís Tryggvadóttir ásamt dóttur sinni í pakkhúsinu
Herdís Tryggvadóttir ásamt dóttur sinni í pakkhúsinu

28.07.2004 Júlí

Pakkhúsið vinsæll staður til að líta við

Góð aðsókn hefur verið í Pakkhúsið á Höfn í sumar en þar er sjóminjasafn og Handraðinn til húsa. Handraðinn er félag handverksfólks í Hornafirði og þar er fjölbreytt úrval muna til sölu svo sem ullar og prjónavörur, smíðagripir, slípaðir steinar og steinstyttur, renndar trévörur, leirvörur, málverk, bútasaumur, hlutir unnir úr flóka og m.fl.
Umsjónarkonur í Handraðanum í sumar eru Herdís Tryggvadóttir og Sigrún Ingólfsdóttir og segir Herdís að sala sé meiri í sumar en var í fyrra og það eru Ítalir sem mest kaupa af þeim. Það eru fjölda margir sem koma bara til að skoða bæði safnið og íslenska handavinnu. Pakkhúsið er opið frá kl. 13–18 og 20–22 fram að miðjum ágúst eftir það verður opið frá kl 13–18 til 31.ágúst.

Herdís segir að um 40 manns séu félagar í Handraðanum og um helmingur þeirra er með sölumuni hér. Hún segir að þetta sé góður félagsskapur og mikið virkari eftir að farið var að hafa sameiginleg vinnukvöld yfir veturinn og núna er að koma mun fleira ungt fólk með okkur en áður var.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica