4-flokkur kvenna Austurlandsmeistarar
Þessi vika hefur mjög sigursæl í flestum flokkum Sindra, 4 flokkur kvenna hélt á Neskaupsstað þar sem þær sigruðu stelpurnar í Þrótti 2-1og tryggðu sér þar með sigur í Austurlandsriðlinum og fara í úrslit Íslandsmótsins. Þróttarar komust yfir í leiknum en mörk frá Brynju Rut og Hebu Björk tryggðu þeim sigurinn. Stelpurnar eru komnar með 21 stig úr 7 leikjum sem er fullt hús stiga og auk þess 31 mark í plús. Þær eiga enn einn leik eftir gegn Huginn á Seyðisfirði en úrslit þess leikar breytir ekki stöðu þeirra í riðlinum. Úrslitakeppnin fer fram fyrir Norðan, annað hvort á Húsavík eða Akureyri. Í næstu ætla stelpurnar að fara í maraþonhlaup frá Höfn upp í Lón ásamt þjálfara sínum Miralem Haseta og tilgangur hlaupsins að safna áheitum til að standa straum að kostnaði við úrslitakeppni.
4-flokkur karla sigraði sameinað lið Víðir-Reynir frá Garði 4-0 og eru þeir í öðru sæti og munu berjast um að komast í úrslitarkeppnina. Meistaraflokkur kvenna er kominn í úrslitakeppnina þar sem barist verður um sæti í úrvalsdeildinni, þetta tryggðu þær með því að sigra Fjarðarbyggð 5-0 á þriðjudag. Meistaraflokkur karla sigraði Leikni Fáskrúðsfirði 4-2 og er þetta fyrsti sigur þeirra eftir 100 ára bið.
.jpg)




Skrifa athugasemd