Öddi Þorbjörns skattakóngur Austurlands
Örn Þór Þorbjörnsson fyrrverandi skipstjóri og núverandi auðkýfingur er skattakóngur Austurlands. Hann greiðir tæpar 32 milljónir í opinber gjöld. Öddi sem er nýkominn úr útreið með Ingimar á Jaðri og Guðmundi Jónssyni þar sem þeir fór vítt og breitt um sveitarfélagið segist vera stoltur af því að fá að greiða svona mikið, hefði þó viðjað vera nær Björgólfi í upphæð. Örn ætlar að dvelja á sumarsetrinu sínu í Stafafellsfjöllum með konunni um Verslunarmannahelgina og taka þátt í hátíðarhöldunum sem þar verða og um leið halda upp á skattakóngstitillinn. Örn segist ætla að skjóta upp mikið af flugeldum á laugardagskvöldinu, miklu meira “flugeldasjó” en hjá Einari Birni á Jökulsárlóninu.
Það eru fleiri Hornfirðingar sem eru á topp 10 listanum yfir gjaldahæstu einstaklinga á Austurlandi, þar er í öðru sæti Ágúst Þorbjörnsson bróðir Ödda, Birgir Sigurðsson í 9 sæti og Guðjón Þorbjörnsson litli bróðir Ödda í 10 sæti.





Skrifa athugasemd