Hitamet sumarsins í Skaftafelli
Hitamet sumarsins í Skaftafelli var í morgun 26°C, á löggildum hitamæli eins og Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður orðaði það og 23°C í Hæðum kl 8.00 í morgun. Á Höfn var hitinn kl 8.30 í morgun 17° í forsælu. Hitamóða liggur yfir fjöllum og jöklum svo skyggni er ekki sérlega gott, er bara eins og í útlöndum. Þetta er heitasti morgun sumarsins í Skaftafelli og það er alveg hrikalega heitt sagði Ragnar, það er að mestu sólarlaust og 5 – 6 metrar austan vindur. Það eru nær eingöngu útlendingar sem núna njóta veðurblíðunnar á tjaldstæðinu í Skaftafelli.
Á Höfn er austan gola sem kemur sér vel fyrir hlauparana í 4. fl.Sindra-kvenna sem, eins og fram hefur komið hér á vefnum, ætla í dag að hlaupa frá Höfn að Jökulsá í Lóni ásamt Mica þjálfara sínum en hann ætlar að hlaupa syngjandi upp Almannaskarðið. Geri aðrir betur og ætli það sé ekki í fyrsta sinn sem það sem gert.





Skrifa athugasemd