Aukning sundlaugargesta í sumar
Þetta er búið að vera ágætis sumar og aðsókn í sundlaugina góð segir Guðlaug Pétursdóttir sundlaugarvörður á Höfn. Í júlí voru sundlaugargestir 6415 en í júlí í fyrra 6501. Frá 1. febrúar til júlíloka í sumar höfðu 19.267 manns komið í sundlaugina en 17.752 á sama tíma í fyrra. Guðlaug segir að yfir sumarið séu þetta langmest útlendingar sem komi í sund og svo föstu viðskiptavinirnir hér á staðnum. Þetta eru 8-14 eldri borgarar, konur og karlar, sem alltaf eru mætt kl 6.50 á morgnana og þau eru ekki að spá í veðrið mæta bara á hverju sem gengur. Sundlaugin opnar kl. 7.00 og er opin til kl.20.30. Frá kl. 9 -12 hafa verið sundæfingar og kennsla 5 ára barna, eins hafa þau sem luku 6 ára bekk í vor sótt æfingar ásamt krökkum allt upp í 14 ára.
Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir um sundkennslu fyrir fullorðna en Guðlaug vissi ekki hvort af slíku námskeiði yrði þó greinilega væri talsverður áhugi fyrir því.
Yfir veturinn eru tveir fastir starfsmenn við sundlaugina ásamt tveim afleysingamönnum og á sumrin eru þar fjórir í fullu starfi og afleysingarfólk eftir þörfum.





Skrifa athugasemd