Endurskoðun lögreglusamþykktar um lagningu húsbíla
Aldrei hefur verið eins mikið um að fólk ferðist um landið á húsbílum, bifreiðum með hjólhýsi eða fellihýsi eins og í sumar. Þetta hefur haft í för með sér að mikill metnaður er lagður í að veita þessum ferðalöngum sem besta þjónustu hér á Höfn og er því aðstaðan á tjaldstæðinu fyrir húsbíla, felli- og hjólhýsi fyrsta flokks og með þeim betri á landinu. Ekki eru það allir sem kjósa að nýta sér þessa aðstöðu og hefur það verið áberandi í sumar að ferðafólk hefur lagt farartækjum sínum næturlangt og stundum lengur víða í bænum þrátt fyrir að til staðar sé rúmgott og snyrtilegt tjaldstæði á fallegum stað með allri tilheyrandi þjónustu.
Á tjaldstæðinu fengust þær upplýsingar að margir af þessum ferðamönnum sem ekki vilja gista á tjaldstæðinu laumast í þá þjónustu sem þar er t.d. fara á snyrtingar, nota þvottaaðstöðu og tæma ferðasalerni og halda síðan á brott án þess að greiða fyrir þjónustuna.
Eigendur Þjónustumiðstöðvar SKG hafa sent Bæjarráði bréf þar sem óskað er eftir að reglur verði settar um hvar má tjalda eða leggja húsbílum innan bæjarins svo sem gert hefur verið á mörgum þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.
Bæjarráð hefur samþykkt að lögreglusamþykkt Sveitarfélagsins verði endurskoðuð m.a. með tilliti til ákvæða um hvar tjalda má og leggja húsbílum innan bæjarmarka Hafnar en bendir á að í núverandi samþykkt eru stöður húsbíla bannaðar á götum og almenningsbifreiðastæðum, ef þau þykja valda íbúum ónæði.





Skrifa athugasemd