Skólastarf í FAS að byrja.
Skólarnir eru flestir að byrja í næstu viku og í nógu að snúast einkum hjá þeim sem ætla í skóla utan heimabyggðar. FAS, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
byrjar mánudaginn 23. ágúst og verður skólinn settur klukkan 11 og að setningu lokinni er hádegisgrill í boði skólans. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. Í gær, 17. ágúst voru um 110 nemendur skráðir í dagskóla og um 40 í kvöldskóla. Við þá tölu eiga eftir að bætast fjarnemendur og aðrir sem eru að taka einn og einn áfanga. Nemendur beint úr grunnskóla eru 29. Námsframboð er fjölbreytilegt. Hægt er að velja á milli 8 námsbrauta í dagskóla og tveggja í kvöldskóla. Vinsælustu brautirnar eru félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut og almenn braut. Kennarar í fullum stöðum verða þeir sömu og síðasta vetur en til viðbótar koma tveir nýir, einn í raungreinar og tungumál. Auk þess verður einn stundakennari við skólann.
Í vetur verður lögð áhersla á að efla félagslíf nemenda svo og ungmenna á aldrinum 16 til 25 ára. Um er að ræða samvinnuverkefni margra aðila undir forystu Menningarmiðstöðvarinnar.
Hægt er að stunda nám án þess að mæta daglega, einnig er hægt að stunda námið algjörlega utan skóla og mæta svo bara í lokapróf eða gera samning við kennarann um fyrirkomulag á verkefnaskiptingu og mætingu. Allir bóklegir áfangar eru í WebCT og áfangar 3. og 4.námsárs verða skipulagðir þannig að auðvelt sé að taka þá í fjarnámi. Einnig er hægt að taka sérgreinar sjávarútvegsbrautar í fjarnámi og eru 30 tonna skipstjórnarréttindi hluti af þeim. Skráning í 30 tonna réttindanámið fer fram á vef skólans. Það eru sem sagt margir möguleikar til að geta stundað nám í FAS.





Skrifa athugasemd