Kammersveitin Ísafold á Hornafirði
Kammersveitin Ísafold skemmtir í Nýheimum á Höfn nk. föstudag kl 20.00 .
Þetta er í annað sinn sem Kammersveitin Ísafold sækir Hornfirðinga heim. Tónleikarnir fyrir ári síðan eru áheyrendum eftirminnilegir fyrir að vera kraftmiklir og gefandi eða eins og segir í gagnrýni Mbl. 23. ágúst 2003: “..allt leikið af stakri innlifun og hrífandi snerpu.” Hljóðfærin sem þau leika á eru fiðlur, lágfiðla, knéfiðla, kontrabassi, flauta, óbó, klarinett, fagott, horn, trompet, básúna, harpa, píanó og slagverk. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Þar sem nær allir meðlimir Ísafoldar eru í námi erlendis er hljómsveitin aðeins starfandi á sumrin. Meðlimir hljómsveitarinnar í sumar, 2004, eru 18 talsins.
Það er líka gaman að geta þess að Hljómsveitin Ísafold sá um undirleik á lagi Egils Jónssonar, Hornafjörður, fyrir Karlakórinn Jökul á væntanlegum disk þeirra í haust og karlakórinn mun syngja það lag með þeim á tónleikunum.
Sjálf lýsa þau tilurð sinni þannig: “Kammersveitin Ísafold var stofnuð í byrjun árs 2003. Það var draumur okkar að búa til hljómsveit samansetta af ungum hljóðfæraleikurum sem væru á lokastigi í tónlistarnámi sínu, hljómsveit þar sem við værum okkar eigin herrar og gætum flutt þá tónlist sem okkur langaði til og á þann hátt sem við teldum bestan. Við ákváðum að einbeita okkur fyrst um sinn að tónlistarperlum 20. og 21. aldarinnar með það að markmiði að kynna þessa tónlist fyrir landsmönnum og gera hana um leið aðgengilegri. Eftir mikla vinnu vorum við tilbúin að ráðast í okkar fyrsta verkefni, sem var tónleikaferð um landið í ágúst 2003.”
Ísafold mun flytja verk eftir T. Hosokawa, Jón Leifs, T. Takemitsu, Úlfar Inga Haraldsson, Bengt Sörensen og Alfred Schnittke.





Skrifa athugasemd