Albert Eymundsson fær heiðursviðurkenningu.
Albert Eymundsson bæjarstjóri á Höfn var heiðraður fyrir störf sín í þágu knattspyrnu á Íslandi og fór sú athöfn fram á Laugardalsvelli áður en leikur Íslands og Ítalíu hófst.
Alþjóða knattspyrnusambandið á 100 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni þess, segir Eggert Magnússon formaður KSÍ., er verið að heiðra einn mann úr hverju aðildarlandi sambandsins, mann sem hefur þótt skara framúr í sambandi við uppbyggingu á knattspyrnu í sínu heimahéraði, grasrótarstarfi eins og við köllum það, hvort sem það er fyrir stráka, stúlkur,karla eða konur og fyrir að hafa verið einstaklega jákvæður alla tíð og tíma gagnvart knattspyrnustarfinu og þessari uppbyggingu hvað sem á hefur gengið. Okkur bar að velja einn einstakling á Íslandi sem við teldum eiga þetta skilið og sá maður er Albert Eymundsson, sem okkur þykir vera algjör fyrirmynd um alla þessa hluti og okkur finnst prýða knattspyrnuforustumann. Hann hefur starfað á öllum þessum sviðum, verið leikmaður, þjálfari og forustumaður og kynnst þar öllum hliðum, allstaðar verið sama góðmennið, jákvæður út í alla hluti og alla staði og fyrirmynd annarra í öllum þessum störfum. Eggert segir það hafa verið sérstaklega ánægjulegt og gaman að geta heiðrað Albert fyrir framan 20 þúsund manns rúml. á íþróttavellinum sem allir klöppuðu honum lof í lófa.
Albert segir erfitt að afmarka það hvenær hann hafi byrjað sinn knattspyrnuferil, það var enginn skipulagður fótbolti hér á Hornafirði þegar ég var krakki en á unglingsárunum bjuggum við til lið, líklega um 1967 og það var fyrsta liðið héðan sem spilaði á Íslandsmóti og í opinberum keppnum. Á þessum tíma var þetta mest samstarf innan liðsins með skipulag og stjórnun þess. Fljótlega fór okkur að ganga vel og Jónas kokkur á hótelinu leiðbeindi okkur eitt sumar.
Þegar ég fór í kennaraskólann var Karl Guðmundsson landsliðsþjálfari kennari þar og fékk ég hann , með hjálp hótelhaldaranna hér, til að vera þjálfari hjá okkur á Hornafirði í einn mánuð. Það hafði mjög góð áhrif og við lærðum mikið á stuttum tíma og það var góður undirbúningur undir framtíðina.
Albert er ánægðastur með að hafa byrjað með yngri flokkana og geta byggt upp öflugt barna og unglingastarf kring um knattspyrnuna og það starf er öflugt enn þann dag í dag.
Albert hefur setið í stjórn KSÍ og tekið virkan þátt í störfum sambandsins. Hann er að vonum ánægður með þennan heiður og sagði “ ég tileinka þessa viðurkenningu Ástu konunni minni og börnunum okkar, þau fórnuðu sumarleyfunum öll árin og þvældust þess í stað þvers og kruss um landið í fótboltaferðalög og fengu aldrei venjuleg sumarfrí.
Hornafjörður.is sendir Albert og fjölskyldu hans bestu hmingjuóskir.





Skrifa athugasemd