Búfénaður veldur skemmdum á Golfvellinum.
Búfénaður hefur valdið skemmdum á golfvellinum í Silfurnesi einkum eru það kindur hafa sótt í svæði (grínin) sem búið er að sá í, étið nýgræðinginn og spyrnt upp jarðveginum. Guðný Helgadóttir í Golfklúbbi Hornafjarðar segir að daglega þurfi að reka kindur af vellinum en þær komi jafnharðan aftur. Guðný segist ekki vera fjárglögg en telur að þetta séu alltaf sömu kindurnar. Síðast þegar smalað var af vellinum voru kindurnar settar í rétt sem er þar skammt frá og bæjaryfirvöldum og lögreglu tilkynnt það með beiðni um að sjá til þess að eigandi þeirra sækti þær. Kindur eru mikið við og á þjóðveginum rétt innan við Höfn og eins hafa þær gert sig heimakomnar í bænum. Okkur er ekki ljúft að smala kindunum út á þjóðveginn þaðan sem þær koma því það getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir vegfarendur. Guðný segir að Golfklúbburinn hafi sent bæjarstjórn bréf þar sem þess er óskað að tekið verði á þessum málum um lausagöngu búfjár en ekki hafi borist neitt svar. Í bréfi Golfklúbbs Hornafjarðar kemur fram að ítrekað hefur þurft að reka sauðfé og hross af svæði félagsins og að miklar skemmdir hafi orðið á þeim svæðum sem nýlega var sáð í.
Í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að bréfið hefur verið tekið fyrir á fundinum og í henni segir bæjarstjóri að starfsmönnum sveitarfélagsins hafi verið falið að taka allt fé í lausagöngu sem kemur inn fyrir bæjarmörkin í vörslu og ganga úr skugga um hverjir eigendur þess eru.
Í 5. gr. samþykktar um búfjárhald á Höfn nr. 125/1993 segir m.a.:
„Eigendum ágangsfénaðar ber að greiða allan kostnað af handsömun og geymslu fénaðarins, svo og allt það tjón sem hann kann að hafa valdið. Við ítrekað brot skal ágangsfénaði slátrað og frálagsverð látið mæta áföllnum kostnaði“
Bæjarráð hvetur eigendur búfjár í nágrenni Hafnar til að gæta að skepnum sínum svo koma megi í veg fyrir óþægindi og kostnað sem lausaganga þess innan bæjarmarkanna hefur í för með sér.
Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir lögreglan sé búin að kanna hverjir eigi kindurnar og taki eigendurnir ekki féð í sína vörslu verður farið með það samkvæmt ofan greindri samþykkt.





Skrifa athugasemd