Lítil berjaspretta í Hornafirði
Mikið hefur verið rætt og ritað í helstu fjölmiðlum landsins um þá miklu berjasprettu sem væri um allt land. Staðreyndin er samt sú að á Austur og Suðaustur landi er lítið af berjum samkvæmt heimildum berjafróðra manna. Til eru þó undantekningar því eitthvað finnst í Suðursveit og á einstaka stað í Öræfum. Gönguhópur aldraðra á Hornafirði brá sér í berjaferð í landi Flateyjar á Mýrum og lét vel yfir afrakstrinum
“ Ég hef ekki séð það öllu svartara” sagði Helga Magnúsdóttir, ein úr hópnum, það var mjög mikið af krækiberjum þarna á aurunum en engin bláber og við vorum skotfljót að fylla ílátin.
Haft var samband við fólk á mörgum stöðum frá Hornafirði og austur um firði og allstaðar var sama svarið “Hér er ekkert af berjum, hvorki krækiber eða bláber,” og ef einhver hafði fundið nokkur krækiber þá voru þau lítil bæði á stærð og bragð.
En hvað veldur að berin skuli ekki vaxa eins og allt sem tengist gróðrinum á þessu einstaka sumri? Leitað var álits nokkurra fróðra manna og var það álit allra að frost sem kom þegar blómgunin var að byrja hefði eyðilagt hana.
Þeir sem vilja byrgja sig upp með ber fyrir veturinn verða bara að bregða sér norður eða suður á land og tína þar sem af nógu er að taka





Skrifa athugasemd