Ágúst
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi er einbreið. Nokkrir árekstrar hafa orðið á brúnni.
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi er einbreið. Nokkrir árekstrar hafa orðið á brúnni.

25.08.2004 Ágúst

Flestar einbreiðu brýrnar frá Gýgju að Streiti

Hægt og bítandi fækkar einbreiðum brúm á hringveginum. Á leiðinni frá Reykjavík til Hornafjarðar eru ennþá 26 einbreiðar brýr, sú vestasta á Jökulsá á Sólheimasandi og á Hoffelsá austast og 14 frá Höfn að Streitishvarfi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að í hans umdæmi, sem nær frá Gýgjukvísl á Skeiðarársandi að Streitishvarfi, séu 33 einbreiðar brýr og er það mun meira en er annarsstaðar á landinu. Reynir segir að ástæðan fyrir þessu er sú að á þessu svæði eru miklu fleiri og stærri vatnsföll en annarsstaðar og miklu dýrari brúarframkvæmdir. Hann telur líklegt að næst verði teknar fyrir brýrnar á Smyrlabjargará og Gljúfurá, þær eru minnstar og líkur á að þær verði settar í hólka, en þetta skírist allt þegar ný vegaáætlun kemur í haust.

Tilkynningar um að vegurinn yfir Mýrdalssand sé lokaður vegna sandfoks heyrir að heita má sögunni til og er þar að þakka uppgræðslu á sandinum sem skilað hefur þessum mikla og góða árangri. Reynir segir að nokkuð hafi gætt foks á Skeiðarársandi eftir síðasta stórhlaup en mikið sé farið að draga úr því, helst að rjúki úr farvegi Núpsvatna og Gýgjukvíslar að mestu fínt ryk. Sé mjög hvasst getur komið komið sandfok við Skeiðará, allt er þetta á styttri köflum en var á Mýrdalssandi en getur samt valdið tjóni á ökutækjum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica