Kartöfluspretta mikil og góð
Kartöflubændur í Hornafirði o.fl. fagna rigningunni sl. sólarhring þar sem allur gróður var orðinn alltof þurr og eins kartöflugarðarnir. Þrátt fyrir allt þetta þurrviðri lítur samt mjög vel út með kartöflusprettu, enn betur en í fyrra segir Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Þar á bæ er búið að taka upp um 50 tonn af kartöflum aðallega gullauga og einnig rauðum íslenskum. Talsvert er um stórar kartöflur og er stærsta kartaflan sem komið hefur núna 372 gr. gullauga. Mestur vöxtur er venjulega í premíu bökunarkartöflum sem eru teknar upp síðastar á haustin. Uppskeran fer jafnóðum í sölu, kartöflurnar eru þvegnar og sendar daginn eftir til kaupenda í Reykjavík. Kartöflurnar sem núna fara í sölu eru óflokkaðar en þegar líður á haustið og híðið farið að þéttast eru þær flokkaðar í 3 flokka, smælki, meðal- og svo stórar kartöflur. Sjö manns eru við kartöfluupptökuna á Seljavöllum.
Grænahraunsbændur eru aðeins byrjaðir að taka upp fyrir heimamarkað. Brynja Hannesdóttir segir útlit með sprettu betra en sl.haust en að þessu sinni eru þau eingöngu með gullauga. Hún segir vinnusparnað að vera með margar tegundir af kartöflum því nær allir vilji fá gullaugað.
Á Miðskeri var byrjað að taka upp fyrst í júlí og fyrstu kartöflurnar þaðan komu í búðir hér 9. júlí sem er um viku fyrr en áður og þar er miklu betri kartöfluspretta en verið hefur. Hjónin Pálína og Sævar Kristinn á Miðskeri rækta vistvænar kartöflur, það er að þá er áburður og arfalyf sem nota þarf alveg í lágmarki.





Skrifa athugasemd