Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnnar hófst miðvikudaginn 15. september. Opið er fimm daga vikunnar fyrir börn og unglinga. Nýtt Þrykkjuráð var kosið á kosningaballi föstudaginn 17.september og voru margir í framboði. Í Þrykkjuráð 2004 hlutu þessi kosningu: úr 10. bekk, Assa Jónsdóttir, Haraldur Bjarnason, Jóhann Kiesel og Ægir Olgeirsson, úr 9. bekk, Margrét Vignisdóttir, Sandra Rán Ásgrímsdóttir og Særós Ester Leifsdóttir, úr 8. bekk, Andri Ágústsson, Ottó Gunnarsson og Sævar Snorrason. Formaður ráðsins er Assa. Ráðið og starfsmenn hafa haldið hugmyndafund og í framhaldinu verður haldinn vinnufundur þar sem hugmyndirnar verða útfærðar og hluti þeirra síðan framkvæmdur í vetur. Þrykkjan er vel búin tækjum s.s. billjardborðum, borðtennisborðum, playstation tölvu, píluhring, fótboltaspilum og sjónvarpi. Þrykkjan er í Samfés sem eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Þrykkjan tekur þátt í viðburðum innan Samfés s.s. söngvakeppninni, Samfésballinu, landsmóti, spurningakeppninni ofl.
Lesa meira