September

Bygging vegskálans að norðan @vegagerdin

Gat í gegnum Almannaskarð eftir 8 daga? - 30.09.2004 September

Það er ljóst að framkvæmdin við göng undir Almannaskarð hefur gengið mjög vel og miklu betur heldur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Upphaflega gerði verktakinn ráð fyrir að gangagreftri lyki um miðjan febrúar á næsta ári. Síðan var þeirri áætlun breytt og gert ráð fyrir að komið væri í gegn um miðjan nóvember nk. Nú er útlit fyrir að gangasprengingum ljúki í lok næstu viku sem þýðir að framkvæmdaraðilarnir Leonhard Nilsen og Sönner frá Noregi og Hérðasverk ehf eru nokkrum mánuðum á undan upphaflegri verkáætlun. Aðeins á eftir að bora og sprengja um 48 metra sem er aðeins um 4,0% af lengd gangana sem verða alls 1.150 metrar að lengd í bergi. Það jafngildir vegalengdinni að keyrt sé frá Ráðhúsinu eftir Hafnarbrautinni inn að Mjólkurstöð. Lesa meira
 
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og leiðtogi Framsóknarflokksins við Jökulsárlón   (úr myndasafni@jokulsarlon).

Líflegt starf Framsóknarfélagsins - 29.09.2004 September

Vetrarstarf Framsóknarfélags Austur Skaftafellssýslu er að fara í gang og starfið með almennum fundi sem verður haldinn þriðjudaginn 5. október n.k. í húsi Slysavarnarfélagsins á Höfn. Dagskrá fundarins m.a. taka á bæjarmálum og munu fulltrúar framsóknar í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornfjarðar fara yfir hvað sé að gerast á þeim vígsstöðvum og sitja fyrir svörum. Einnig verður kosning fulltrúa á kjördæmaþingið sem fram fer í suðurkjördæmi í október. Í byrjun október er von á konum frá landsambandi framsóknarkvenna og munu þær halda fund fyrir framsóknarkonur í sveitarfélaginu. Aðalfundur félagsins verður síðan haldinn í lok október. Lesa meira
 
Séra Fjölnir Ásbjörnsson

Sunnudagaskólinn og fermingarundirbúningur - 29.09.2004 September

Sunnudagaskólinn hóf göngu sína á sunnudaginn var, 26. september, í Hafnarkirkju undir stjórn séra Fjölnirs Ásbjörnssonar sem ráðinn hefur verið til að leysa af séra Sigurð Kr. Sigurðsson í vetur. Mæting í sunnudagaskólann var góð en yfir 80 manns, börn og foreldrar mættu til leiks. Allir krakkar fengu bækur og límmiða, þau skemmtu sér við söng, sögur og brúðuleikhús. Mikki refur heimsótti krakkana. Eftir hádegi var síðan messa þar sem foreldrar fermingarbarna voru sérstaklega hvattir til að mæta. Eftir messuna hitti Séra Fjölnir fermingarbörnin og foreldra þeirra þar sem rætt var um fermingarstarf vetrarins. Lesa meira
 
Diskó á Hótel Höfn

Diskó á Hótel Höfn - 28.09.2004 September

Á föstudagskvöld mun Hornfirska skemmtifélagið frumsýna tónlistardagskránna Diskó á Hótel Höfn. Fyrirhugað er að sýningarnar verði fjórar og síðan mun félagið flytja dagskránna á Brodway í Reykjavík þann 22. október. Í tengslum við sýninguna á Hótel Höfn er boðið upp á helgarpakka sem saman standa af tveggja rétta málsverði með kaffi og konfekti, diskó-sýningu, dansleik og gistingu í tvær nætur í tveggja manna herbergi. Þetta er þriðja sýningin sem Hornfirska skemmtifélagið stendur fyrir en áður voru það sýningarnar Slappaðu af og Með allt á hreinu. Lesa meira
 
Einari Hálfdánarsyni afhent þakkarskjalið

Einarslundur formlega tekinn í notkun - 27.09.2004 September

Lundurinn við Miðfjárhúshól sem er yfirleitt er kallaður Einarslundur var formlega tekinn í notkun í gær sem fuglaskoðunar- og útivistarstaður og er hann nú öllum opinn. Margir þekkja lundinn undir nafninu Ugluskógur en hann er við Miðfjárhúshól þar sem landmælingarstöðin stendur austan megin við pípuhliðið. Einar Hálfdánarson byrjaði að planta trjám við hólinn um 1950 og telja má Einar sem fyrsta skóræktarmanninn í Austur-Skaftafellssýslu. Í Einarslundi er mest af barrtrjám en einnig nokkuð af lauftrjám. Margar tegundir fugla hafa sést í og við lundinn og finnast þar stokkandar og skógarþrastarhreiður á hverju ári. Fuglaáhugamenn hafa verið tíðir gestir í Einarslundi um árabil og er óhætt að fullyrða að Einari hafi ekki leiðst þær gestakomur. Einar afhenti Félagi Fuglaáhugamanna lundinn á þessu ári þegar hann dró sig í hlé af heilsufarsástæðum og í maí á þessu ári afhenti Sveitarfélagið Hornafjarðar félaginu svæðið umhverfis lundinn til umsjónar. Lesa meira
 
Sigríður Á. Snævarr og Ari Trausti fyrir framan jakann góða   @jokulsarlon

Minnkaði um 8 tonn á leiðinni til Parísar - 27.09.2004 September

Ísjakinn sem var 22 tonn þegar hann var fluttur frá Jökulsárlóni með Eimskip til Rotterdam og þaðan landleiðina til Parísar minnkaði um 8 tonn á leiðinni samkvæmt upplýsingum frá Ara Trausta Guðmundssyni við Morgunblaðið í morgun og gefur Ari Trausti jakanum 10 daga þar til hann verður bráðnaður (mbl.is). Ísjakinn verður tákn Íslands á sýningunni Hátíð menningar, vísinda og atvinnulífskynningar, sem fram fer í Frakkland og hefst sjálf sýningin í dag og stendur í 14 daga. Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr og Ari Trausti Guðmundsson hafa séð um undirbúning fyrir sýninguna á samt Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra. Lesa meira
 
Skemmdir eftir innbrot í Byggðarsafnið   @ba

Gekk bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum - 27.09.2004 September

Brotist var inn í Byggðarsafn A-Skaft aðfaranótt laugardagskvölds og þar unnið óbætanlegt tjón. Það var athugull vegfarandi sem staddur var við safnið um miðjan laugardag sem tók eftir ummerkjum um innbrotið og lét vita. Að sögn Björns Arnarsonar safnsvarðar hafði skemmdarvargurinn brotið glugga sem hann notaði til að komast inn í safnið, þar gekk hann bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum. Lögreglan á Höfn sem vinnur að rannsókn málsins segir að sá sem braust inn í safnið hafi ekki gert það til að stela, heldur var þar um heina skemmdarfíkn að ræða. Lesa meira
 
Úr myndasafni

Félagsmiðstöðvarin Þrykkjan komin á fullt. - 24.09.2004 September

Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnnar hófst miðvikudaginn 15. september. Opið er fimm daga vikunnar fyrir börn og unglinga. Nýtt Þrykkjuráð var kosið á kosningaballi föstudaginn 17.september og voru margir í framboði. Í Þrykkjuráð 2004 hlutu þessi kosningu: úr 10. bekk, Assa Jónsdóttir, Haraldur Bjarnason, Jóhann Kiesel og Ægir Olgeirsson, úr 9. bekk, Margrét Vignisdóttir, Sandra Rán Ásgrímsdóttir og Særós Ester Leifsdóttir, úr 8. bekk, Andri Ágústsson, Ottó Gunnarsson og Sævar Snorrason. Formaður ráðsins er Assa. Ráðið og starfsmenn hafa haldið hugmyndafund og í framhaldinu verður haldinn vinnufundur þar sem hugmyndirnar verða útfærðar og hluti þeirra síðan framkvæmdur í vetur. Þrykkjan er vel búin tækjum s.s. billjardborðum, borðtennisborðum, playstation tölvu, píluhring, fótboltaspilum og sjónvarpi. Þrykkjan er í Samfés sem eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Þrykkjan tekur þátt í viðburðum innan Samfés s.s. söngvakeppninni, Samfésballinu, landsmóti, spurningakeppninni ofl. Lesa meira
 
Droplaug og Alla nýta tímann vel í Hafnarskóla @hafanrskóli

Rúmlega 400 grunnskólabörn eru heima þessa dagana - 24.09.2004 September

Eins og alþjóð veit eru grunnskólakennarar í verkfalli og það lítur hreint ekki vel út í samningamálum þeirra. Við Hornfirðingar förum ekki varhluta af verkfallinu. Öll grunnskólabörnin okkar, rúmlega 400 talsins, eru heima þessa dagana enda allir kennarar á Hornafirði í Kennarasambandi Íslands, því stéttarfélagi sem semur við Samband íslenskra sveitafélaga fyrir hönd kennara. Það eru þó ekki allir starfsmenn grunnskólanna í verkfalli. Húsverðir, skólaliðar, stuðningsfulltrúar, skrifstofufólk, starfsfólk mötuneyta og skólastjórnendur eru ekki í verkfalli. Þetta fólk mætir allt saman til vinnu og reynir að finna verkefni sem ekki teljast í verkahring kennara. Í skólunum er núna tekið til og þrifið eins og líf liggi við. Gárungarnir segja að ekki hafi verið svona hreint í skólunum síðan í síðasta verkfalli fyrir níu árum. Þess má þó geta að í því verkfalli voru stuðningsfulltrúar varla farnir að sjást í grunnskólum Hornafjarðar og engir skólaliðar. Lesa meira
 
Tekist á í boltanum í sumar  (úr myndasafni)

Setja punktinn yfir sumarstarfið - 23.09.2004 September

Uppskeruhátíð yngri flokka Sindra fer fram miðvikudaginn í næstu viku á Hótel Höfn. Hátíðin sem haldin er um þetta leiti á hverju ári er til að setja punktinn yfir sumarstarfið sem eins og undanfæri ár var mjög árangursríkt. Það eru um 150 krakkar og 6 þjálfarar sem hafa tekið þátt í sumarstarfinu. Á hótelinu verður boðið er upp á pizzur og gos ásamt því að þjálfarar bjóða upp á skemmtidagskrá. Allir krakkarnir fá viðurkenningu sem er peningaverðlaun með mynd af fótboltamanni. Uppskeruhátíðin þýðir ekki að krakkarnir séu hættir að spila fótbolta þar til næsta sumar því nú eru menn byrjaðir æfingar að nýju og með tilkomu nýja sparkvallarins þá geta menn æft allan veturinn úti svo fremur sem veður leyfir. Lesa meira
 
Æfingarsvæði litboltafélagsins

Stríðsleikir í Lingey - 23.09.2004 September

Eflaust hafa margir velt því fyrir sér hvor búið sé að reisa kvikmyndaver í Lyngey þar sem sjá má kofa og ýmislegt annað í líkingu bygginga, nei ekki er það kvikmyndaver því að þarna hefur Litboltafélag Hornafjarðar búið til keppnisvöll þar sem farið er í stríðsleiki. Leikirnir hafa að mestu farið fram um helgar, þá mæta keppendur og skipta sér í lið og hefja leikinn. Það eru um 25 manns sem taka þátt í leiknum þar sem hver og einn er með byssu sem er tengd koltvístringshylki og með skot sem eru fyllt með málningu, fitu og sápu. ,,Það getur verið nokkuð vont að fá skot í sig ef skotið er af stuttu færi” sagði einn þátttakandinn en bætti við að sjálfsögðu hörkuðu menn það af sér. Lesa meira
 
Svafa Mjöll Jónasar í Sporthöllinni

Fyrirlestur ,,Nýjar leiðir – Nýr líkami - 22.09.2004 September

Næstkomandi föstudag mun Sporthöllin standa fyrir fyrirlestri sem er hluti af grenningardögum Sporthallarinnar. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig má hámarka árangur með réttri notkun fæðubótarefna, þjálfunaraðferðir fyrir nýja kynslóð líkamsræktarfólks, grunn-næring – nýtt upphaf, hvernig hægt er að reikna út kaloríu-inntöku á fljótlegan og einfaldan hátt og nýjar leiðir til að lækka fituprósentu. Fyrirlesari er Unnar Karlsson sem hefur m.a. haldið fyrirlestra um árangurs-aukningu og fitumissi fyrir fólk á öllum aldri og þjálfað ótal einstaklinga sem fóru í gegnum Líkami-fyrir-Lífið áætlunina frá árunum 1999-2002. Hann var einnig fyrstur Íslendinga til að ljúka Body for Life prógrami EAS Hann hefur þjálfað bæði fitness keppendur og keppendur í vaxtarrækt, handbolta, fótbolta, og körfubolta leikmenn. Lesa meira
 
Heiða Dís og Snorri

Hárgreiðslustofan Jaspis er 15 ára í dag - 21.09.2004 September

Fyrirtækið sem nú er starfrækt í Miðbæ var fyrst opnað að Austurbraut 10 og var þar einnig rekin snyrtistofa en það voru þær Heiða Dís Einarsdóttir og Ólöf Guðrún Helgadóttir sem þar tóku saman höndum og snyrtu Hornafirðinga og nærsveitamenn frá toppi til táar í orðsins fyllstu merkingu. Þær stöllur fluttu sig síðan um set á Hafnarbrautina og unnu þar saman þar til Ólöf flutti til Reykjavíkur og var starfsemin þá flutt í húsnæðið þar sem nú hýsir íþróttafélagið Sindra. Þar setti Heiða Dís einnig upp snyrtivöruverslun og hefur rekið hana samhliða hársnyrtistofunni. Heiða Dís verslar með hinar geysivinsælu No Name vörur og er nýja litalínan væntanleg í október. Lesa meira
 
Árgangur 49 og 50 á bekkjarmóti í september 2004

Árgangur 49 og 50 hittust um helgina - 20.09.2004 September

Bekkjarmót eru alltaf skemmtileg og þegar að langur tími líður á milli móta þá er ákaflega gaman að sjá breytingarnar á fólkinu. Um helgina hittust árgangar 49/50 og var byrjað á því að hittist í Pakkhúsinu í morgunmat. Þar var heiðursgestur Árni Stefánsson sem var kennari þeirra og skólastjóri í Hafnarskóla og Svava Sverrisdóttir kona hans. Úr pakkhúsinu var haldið á Birni Lóðs út á fjörur þar sem rúta beið eftir hópnum, þaðan var ekið út á Höfn með viðkomu á tökustað Bjólfskviðu eða Bjórskviðu eins og einn bekkjarfélaginn vildi kalla staðinn þar sem hópurinn stoppaði til að drekka kaffi. Lesa meira
 
Í sláturhúsinu 19.september

Slátrun sauðfjár hefst í dag - 20.09.2004 September

Sauðfjárflutningabíll KASK mætti með fyrsta farminn af sauðfé í gær og voru það um 350 rollur frá Breiðdalsvík. Slátrun sauðfjár hefst í dag og er áætlað að slátrað verði þar um 25 þúsund fjár á sláturvertíðinni sem er aðeins minna en var síðasta haust. Sá háttur verður hafður á að þessu sinni að Sláturfélagið Búi er undirverktaki Norðlenska og mun Norðlenska kaupa kjötið beint af bændum. Þetta mun vera vegna þess að Sláturfélaginu Búa ásamt fleiri sláturhúsum um baktryggingu hjá Byggðastofnun vegna afurðarlána frá Landsbankanum. Að sögn Einars Karlssonar sláturhússtjóra þá vantar enn fólk í vinnu og geta áhugasamir haft samband við hann. Sláturvertíðin stendur í 5 vikur miðað við að sláturhúsið sé fullmannað. Lesa meira
 
Birna Sóley og Rósa hjá Flikk

Flikk heldur upp á 5 ára afmæli - 18.09.2004 September

Hársnyrtistofan Flikk heldur upp á fimm ára afmæli sitt þessa dagana. Birna Sóley Sigurðardóttir hársnyrtimeistari og förðunarfræðingur er eigandi Flikk. Nokkru eftir heimkomuna að loknu námi í Reykjavík hófst hún og Egill Benediktsson eiginmaður hennar, handa við að byggja bílskúrinn upp og innrétta hann fyrir hársnyrtistofu. Ég ákvað í upphafi að byggja þetta allt almennilega upp strax og einnig að bjóða upp á ýmsar vörur aðrar en hársnyrtivörur svo sem ilmvötn, handtöskur, ekta skartgripi, förðunarvörur og ýmislegt fleira segir Birna Sóley. Þetta eru góðar vörur fyrir konur og karla á öllum aldri og það er ekkert kynslóðabil hjá okkur hér. Ég hef verið ein að vinna á stofunni þar til í fyrra að ég tók nema í hársnyrtingu. Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

NAUST fagnar stækkun Þjóðgarsins í Skaftafelli - 18.09.2004 September

Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST) hafa sent Umhverfisráðuneytinu bréf þar sem þau fagna að ákveðið hefur verið að stækka Þjóðgarðinn í Skaftafelli. Þar segja samtökin að stækka þjóðgarðinn með því að tengja Lakagígja við hann, sé skynsamlegt skref að Vatnajökulsþjóðgarði framtíðarinnar. Þau segja það einnig fagnaðarefni að Skaftafell verði sett á Heimsminnjaskrá UNESCO og þetta tvennt sé þýðingarmikið fyrir náttúruvernd og búsetu í Skaftafellssýslum. Samtökin telja áriðandi að settar verði frá upphafi skýrar reglur varðandi akstur ökutækja innan þjóðgarðsins, bæði á jökuli en ekki síst á láglendið, þar sem í dag er töluvert um utanvega akstur. Nauðsynlegt sé að merkja vegi og slóða sem aka má á en loka öðrum. Samtökin segja í bréfi sínu að í dag sé þetta ábótavant á landsvæðum sem munu bætast við þjóðgarðinn. Lesa meira
 
Krakkablak

Krakkablak, ný íþróttagrein á Hornafirði - 17.09.2004 September

Mikilvægi þess að stunda holla og góða hreyfingu verður seint ofmetið. Fjölbreytt framboð íþróttagreina er mikilvægt til að auka líkurnar á að fleiri finni íþróttagrein við sitt hæfi. Því er því ánægjulegt að geta sagt frá því að nú eru að hefjast æfingar á nýrri íþróttagrein hér á Hornafirði. Þessi nýja grein er blaklíkur leikur sem nefnist krakkablak (Kidsvolley). Hér er á ferðinni byltingarkennd aðferð við að kenna blak í yngstu aldurshópunum og einnig eldri byrjendum. Hingað til hefur verið talið vonlítið að byrja að kenna krökkum blak fyrr en við 10-12 ára aldurinn vegna þess hversu tæknilega erfið íþróttin er. Lesa meira
 
Albert og Magnús sýna skemmtilega takta

Grasvöllurinn tilbúinn í sparkið - 17.09.2004 September

Lokið er lagningu gerfigrass á sparkvöllinn við íþróttahúsið og aðeins er eftir að snyrta við völlinn og setja upp flóðlýsingu. Þetta er alveg bylting fyrir krakkana að fá þessa aðstöðu segir Magnús Jónasson í Blómalandi. Hér hefur verið fullt af krökkum, strákum og stelpum að leika sér en það er næsta víst að margir af þessum krökkum |nl| hefðu eytt kvöldinu við tölvuna heima ef völlurinn væri ekki. Það er ekki vafi á að sparkvöllurinn á eftir að sanna gildi sitt og krakkarnir njóta sín vel þar. Magnús og Albert Eymundsson létu eftir sér að prófa völlinn aðeins svona rétt til að finna gömlu fótbolta tilfinninguna. Lesa meira
 
heilso3

Bjóða því uppá viðtals- og fræðslutíma fyrir ungt fólk - 17.09.2004 September

Hjúkrunarfræðingar á Heilsugæslustöðinni á Hornafirði ætla að verða með opna móttöku fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára og bjóða því uppá viðtals og fræðslutíma á heilsugæslustöðinni. Þessi opna móttaka verður einu sinni í viku, á mánudögum frá kl.16.30 til 18.00 og verður fyrsti tíminn 20. september. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu og tímapantanir óþarfar, bara kíkja við vilji viðkomandi vita meira um t.d. kynþroskann, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir, þunglyndi, kvíða, offitu og margt fleira. Áslaug Valsdóttir ljósmóðir er ein þeirra sem að þessu framtaki standa segir að víða á heilsugæslustöðvum í Reykjavík sé boðið upp á þessa þjónustu og á einhverjum stöðum á landsbyggðinni. Okkur hér fannst tími til kominn að við gerðum þetta líka og það hefur tekið okkur ár að undirbúa þetta og ýta því af stað segir Áslaug. Lesa meira
 
Séð heima að Svínafelli í Öræfum

Tjón í Svínafelli í Öræfum vegna grjótfoks - 16.09.2004 September

Veðurofsinn sem gekk yfir Öræfasveit í morgun olli einnig tjóni í Svínafelli. |nl|Skemmdir komu undan grjótfoki í flest allar rúður í litlu gestahúsunum og önnur hlið þjónustuskálans er öll grjótbarin. Eldhúsbíll sem þar var fauk á hliðina en ekki var búið að koma honum á hjólin í dag og því ekki vitað um skemmdir á honum en ljóst er að allt inni í honum er í einum hrærigraut , sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi. Fólk sem var í litlu húsunum síðustu nótt sagði að mikið hefði gengið á og að húsin hefðu skolfið hressilega og grjóthríðin bulið á þeim. Lesa meira
 
Skemmdir á Hótel Skaftafelli í Freysnesi @SA

Það kom eins og ægileg sprenging - 16.09.2004 September

Eins og sagt var frá hér í morgun hefur orðið tugmilljóna tjón á Hótel Skaftafelli í Freysnesi og þegar fréttamaður vefsins hafði samband við Jón Benediktsson og Önnu Maríu Ragnarsdóttur hóteleigendur kl. 9.30 var enn mikill veðurofsi og ekki búið að kanna tjónið sem er gífurlegt. Það voru um 40 manns hér í nótt, hópur erlendra ferðamanna, mjólkurbílstjórar og starfsfólk sem sluppu öll ómeidd sagði Jón. Fólkið var flutt með dreka björgunarsveitarinnar í þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Meðan beðið var komu drekans frá Fagurhólsmýri beið fólkið í kjallara hótelsins. Starfsmaður hótelsins vaknaði við að glerbrotum rigndi yfir hann, sama var með aldraða konu, hún vaknaði í glerbrotahrúgu þegar þak af einni svefnherbergisálmunni fauk af. Það kom eins og ægileg sprenging og segir Jón að sennilegt sé að þakið hafi þá splundrast, svo fauk það um allt, braut og bramlaði glugga og um allt húsið. Það er hífandi rok hér inni í hótelinu núna og við getum ekkert gert eða kannað skemmdir nánar ennþá vegna veðurofsans. Lesa meira
 
Starfsmenn flugturnsins á Hornafjarðarflugvelli að prufukeyra @JonasFr

Átthjól prófað sem björgunartæki við Hornafjarðarflugvöll - 16.09.2004 September

Flugmálastjórn hélt á dögunum kynningu fyrir starfsmenn Flugmálastjórnar á Hornafjarðarflugvelli á átthjóli sem gæti reynst heppilegt björgunartæki við flugvöllinn. Á svæðinu sunnan við flugbrautina og víða meðfram firðinum eru leirur sem öll farartæki hafa setið föst í. Það fór eins með átthjólið og önnur farartæki, það komst ekki yfir leirudrulluna sem var næst landinu. Ekki er flugmálastjórn þó búin að gefa þetta upp á bátinn því þeir ætla að koma aftur með gripinn útbúinn með beltum og skoða hvort það gangi ekki betur. Átthjólið hefur reynst mjög vel í Noregi, það fer yfir flestar torfærur hvort sem er á landi eða á vötnum og þykir gott farartæki í snjó. Lesa meira
 
Verið að huga að bátnum sem fauk upp í fjöru

Veðurofsinn í nótt og morgun - 16.09.2004 September

Miklar skemmdir urðu í Freysnesi vegna veðursins í morgun þegar þak af álmu fauk í heilu lagi og lenti á tengibyggingu og sem voru á stæðinu við hótelið. Talið að tjónið sé um tug milljóna. Gestir sem voru á hótelinu voru fluttir í Skaftafell en ekki urðu slys á fólki. Talið er að vindhraðinn hafi farið í 50 m/s. Ekki þurfti að kalla út Björgunarsveitarmenn á Höfn vegna veðurofsans í nótt og að sögn Lögreglunnar þá hafa þeir ekki fengið neina tilkynningu vegna veðursins fram að þessu. Víða má sjá ruslatunnur á víðavangi sem hafa fokið, fiskikör við Bestfisk sem stóðu við húsið fuku yfir Óslandsveginn, smábátur losnaði og rak í land þar sem hann nú bíður þar til verður lægir og vindurinn velti fánaborgum við fyrirtæki á hliðina á nokkrum stöðum. Lesa meira
 
Búðin á milli sanda

Verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hættir - 16.09.2004 September

Næstu helgi mun verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hætta og Versluninni milli sanda lokað. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli og fjölskylda eiga verslunina og hafa leigt aðstöðu í verslunarhúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Ólafur gerði tilboð í verslunarhús Kask þar á staðnum ásamt íbúðarhúsi en samningar náðust ekki svo ekkert varð af kaupum. Ég opnaði verslunina 1.júní í fyrra og einnig gistingu í íbúðarhúsinu hér á Fagurhólsmýri segir Ólafur. Sumarið hefur gengið þokkalega en verslun í dag er erfið þar sem við kaupmenn fáum vöruna ekki á sambærilegu verði og lágvöruverslanirnar greiða fyrir þær. Verslunin var opin síðasta vetur en hann segir að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir verslun þar yfir veturinn . Lesa meira
 
Ari Trausti í viðtali á Jökulsárlóni

Góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna - 15.09.2004 September

Taka 22 tonna ísjaka á Jökulsárlóni og flutningur hans til Parísar hefur vakið mikla athygli ekki síst í Frakklandi. Fimm franskir blaðamenn fylgdust með þegar verið var að ná jakanum úr lóninu og koma honum á flutningabíl. Um morguninn áður ef jakatakan byrjaði bauð Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón blaðamönnum, ljósmyndurum og .fl í siglingu um lónið og var mikil ánægja með ferðina ásamt því sem fyrir augu bar. Ekki er nokkur vafi á að þetta ísjaka dæmi eins og það leggur sig verður mikil og góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Lesa meira
 
Hrogn og lifur hreinsuð

Atvinnulausum fækkar í sveitarfélaginu - 14.09.2004 September

Atvinnuástand á Hornafirði er mjög gott og atvinnuleysisskráin hefur minnkað verulega mikið segir Hjördís Þóra Sigþórsdóttir formaður Vökuls Stéttarfélags. Síðastliðinn föstudag voru 14 manns, 9 konur og 5 karlar, skráðir atvinnulausir og vonir standa til að þessi tala lækki enn frekar næstu daga. Fiskvinnslur á staðnum hafa undanfarið ítrekað auglýst eftir fólki til starfa án teljanlegs árangurs. Hjördís telur ekki að ástæða sé að ætla að þeir sem eru á atvinnuleysisskránni vilji ekki fara í fiskvinnslu heldur sé þetta fólk sem ekki geti eða megi vera í fiski. Hjördís segir að ef fólk á atvinnuleysisbótum hafnar vinnu sem því býðst eru málefni viðkomandi tekin fyrir á fundi hjá úthlutunarnefnd og ef í ljós kemur að ekki er haldbær ástæða fyrir því er sá einstaklingur sviptur atvinnuleysisbótum í tvo mánuði. Lesa meira
 
Þorsteinn Sigurbergsson við stjórntækin

Listljósasýning í Mánagarði - 14.09.2004 Menning

Næstkomandi föstudagskvöld verður frumsýning í Mánagarði á Upphafinu sem er listljósasýning eftir Þorstein Grétar Sigurbergsson. Þorsteinn sem er frá Einholti á Mýrum hefur unnið mikið með Leikfélagi Hornafjarðar, fyrst sem leikari, síðar sem leikmyndahönnuður og leikstjóri, en síðustu árin hefur hann starfað mest sem ljósahönnuður og hefur hann m.a. hannað lýsingar fyrir Leikfélag Hveragerðis, Leikfélag Rangæinga, Sjónleik, Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Óperustúdíó Austurlands fyrir utan heimaaðilana. Þorsteinn vann ákveðið frumkvöðlastarf þegar hann samdi listljósasýninguna Sólarhring árið 2000 sem fram fór í Hlöðunni á Fiskhól. Lesa meira
 
Krakkarnir í Nejaskóla í Norræna skólahlaupinu @Nesjaskóli

Norræna skólahlaupið í veðurblíðunni í dag - 14.09.2004 September

Nemendur og starfsfólk Hafnar- og Nesjaskóla nýttu góða veðrið í dag til þátttöku í Norræna skólahlaupinu. Fyrirkomulag hlaupsins í Nesjaskóla er núna eins og undanfarin ár sem er þannig að þátttakendum er ekið í rútu inn að Meðalfellsrétt og þaðan er hlaupið heim í skóla. Þetta eru 2.5 km og stóðu þátttakendur sig með mikilli prýði þú eins og endranær Krakkarnir í Hafnarskóla hlupu um götur Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 20. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu. Lesa meira
 
Hjalti Þór Vignisson

Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn - 14.09.2004 Fréttir

Hornfirðingurinn Hjalti Þór Vignisson var valinn úr hópi tólf umsækjenda í starf framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hjalti lauk í vetur námi í stjórnmálafræði og hefur hann störf næstkomandi mánudag. Hjalti bjó í Reykjavík frá 19 ára aldri en kom alltaf heim á sumrin m.a. til að spila knattspyrnu og á hann að baki yfir 100 deildarleiki fyrir Sindra. Síðustu þrjú árin hefur hann síðan búið í Reykjavík og erlendis. Hjalti segist þess fullviss að mjög holt sé fyrir ungt fólk að fara að heiman og kynnast nýjum stöðum utanlands og innan og víkka þannig sjóndeildarhringinn, þá er maður svo tilbúinn að koma heim aftur. Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn og við Guðrún, konan mín, og Salvör Dalla, litla dóttirin, erum alsæl að vera komin aftur hingað heim. Hjalti segist hlakka til að takast á við nýja starfið og núna ætla þau að fara að leita að húsnæði til að kaupa og búið er að fá leikskólapláss fyrir dótturina sem er á öðru árinu. Lesa meira
 
Útkall slökkviliðs að Bjarnarhól

Kartöflurnar farnar að brenna í pottinum - 13.09.2004 September

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað að Bjarnarhól á Höfn um kl.20 í kvöld. Mikil bræla var í íbúð þar en ekki eldur. Húsráðandi sem var að elda kartöflur, hafði farið að heiman og kartöflurnar farnar að brenna í pottinum. Kona í næstu íbúð heyrði í reykskynjara og fann brunalykt og hringdi í neyðarlínuna. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri sagði að 14 slökkviliðsmenn hefðu verið mættir á stöðina til að fara á æfingu þegar útkallið kom svo þeir voru fljótir á staðinn. Ekki urðu neinar skemmdir á íbúðinni og slökkviliðið reykræsti íbúðina. Húsráðandi var ekki kominn heim í matinn þegar slökkviliðsmenn höfðu lokið sínum störfum í íbúðinni og ekki var vitað hvert hann hafði skroppið. Lesa meira
 
Klakinn settur á bíl

22 tonna ísjaki úr Jökulsárlóni til Parísar - 13.09.2004 September

Í morgun var 22 tonna ísjaki, 5 metra langur 2 ½ m á hæð og breidd, hífður upp úr Jökulsárlóni og settur á flutningabíl sem fer með hann til Reykjavíkur. Jakinn verður síðan fluttur með Eimskip til Rotterdam og þaðan landleiðina til Parísar þar sem hann verður tákn Íslands á sýningunni Hátíð menningar, vísinda og atvinnulífskynningar, sem fram fer í Frakkland, stendur í ½ mánuð með menningardagskrá í 25 liðum og fer fram um allt Frakkland. Sjálf sýningin, þar sem jakinn mun standa fyrir framan Vísindasafnið í miðborg Parísar, hefst 27.september. Þetta verður óskaplega mikil Íslandskynning, sú mesta sem fram hefur farið erlendis segir Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr, en hún og Ari Trausti Guðmundsson sjá um undirbúning fyrir sýninguna á samt Halldóri Ásgrímssyni verðandi Forsætisráðherra. Tuttugu íslensk fyrirtæki munu sýna þarna og kynna sig í sérstökum sal í safninu og verður ferðaþjónustan þar vel kynnt. Stórt skilti verður við ísjakann framan við safnið þar sem segir frá hvar hann var tekinn og hvað ísjaki er. Vörður verður allan sólarhringinn við jakann og gætir þess að enginn fari sér að voða við hann. Lesa meira
 
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður

Ætlar að kynna sér starfsemi Náttúruskóla - 13.09.2004 September

Náttúruskólar eru skólar sem taka á móti skólakrökkum á mismunandi aldri og þar er þeim veitt náttúru- og umhverfisfræðsla. Þetta eru skólar sem nýta þjóðgarða og friðlönd til umhverfisfræðslu, þannig að hægt er að búa til skólaefni og stíla upp á 4. bekk grunnskóla. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli segir að búið sé að hluta til, að gera töluvert af námsefni hér á Íslandi en eftir er að finna hvernig það nýtist best. Ragnar er nýfarinn í þriggja mánaða námsleyfi til Danmerkur þar sem hann ætlar að kynna sér starfsemi Náttúruskóla. Ragnar segir að Danir séu framarlega í þessum náttúruskólum og telur hann að þetta sé einn af þeim vaxtarbroddum sem við getum tekið á og þá fyrir Suðurland, frá Hornafirði til Selfoss, til að taka á móti skólakrökkum og telur að við höfum þar mikið upp á að bjóða. Lesa meira
 
Vegskálinn að norðanverðu @GeoTek

Búnir að sprengja um 77% af heildarlengd ganganna - 10.09.2004 September

Gröftur ganganna undir Almannaskarð hefur gengið vel að undanförnu. Í dag er búið að sprengja um 890 metra að sunnanverðu auk 5 metra að norðanverðu. Samtals er því búið að sprengja um 77% af heildarlengd ganganna sem verða um 1.150 metrar í bergi. Unnið er við vegfyllingar að sunnanverðu og byggingu vegskála að norðanverðu. Alls vinna nú um 35 manns við verkið auk þeirra jarðgangamanna sem eru í fríi (um 11 manns). Að kvöldi þegar myrkur hefur skollið á hafa Hafnarbúar tekið eftir ljósadýrðinni í kringum vinnubúðirnar við göngin en undanfarið hafa ljósadýrðirnar verið tvær því rétt austanmegin við göngin eru búðir vegna upptöku Bjólfskviðu sem m.a. fer þar fram. Lesa meira
 
Elísabet Jóhannesdóttir, hótelstjóri

Búið að vera fullbókað á síðan í sumar - 10.09.2004 September

Það er gott hljóðið í ferða og gistiþjónustuaðilum í Hornafirði eftir sumarið og þeir eiga líka von á góðu hausti. Það er búið að vera alveg fullt að gera og ofsalega gaman, hótelið fullt af ferða-og kvikmyndafólki segir Elísabet Jóhannesdóttir einn eigenda Hótel Hafnar. Það er búið að vera fullbókað á hótelinu síðan í sumar og fullt af fólki sem við höfum þurft að vísa annað, við látum enga fara burt án þess að hafa hjálpað þeim til að finna gististað. Síðasti ferðahópur sumarsins sem á bókað kemur í næstu viku. Þetta er fjórða sumarið okkar með Hótel Höfn og það besta segir Elísabet. Nú koma fleiri hópar í september en áður og það er eins og ferðamáti útlendinga sé að breytast því það er áberandi hvað margir ferðast um landið á einkabílum og panta fyrir sig sjálfir. Lesa meira
 
Frá sundæfingu

Sunddeild Sindra komin á fullt skrið - 09.09.2004 September

Sunddeild Sindra byrjar æfingar í næstu viku og verða 7-8 ára saman á þriðjudögum kl.14:45, 9-10 ára á fimmtudögum kl. 14:45 og 11 ára og eldri á mánudögum og miðvikudögum. Hjá sunddeild Sindra stendur nú til að halda skriðsundsnámskeið og er það gert vegna fjölda fyrirspurna. Fyrirhugað er að námskeiðið verði 8 tíma skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna og mun það byrja miðvikudaginn 22. september n.k. Kennt verður á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og föstudögum. Lesa meira
 
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)

Fundur um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs - 09.09.2004 September

Opinn fundur um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs sem fyrsta skref í Vatnajökulsþjóðgarði verður haldinn í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli sunnudaginn 12.sept. kl.14:00. Ráðherra mun þar kynna ákvörðun Ríkisstjórnarinnar um það að fara í þetta verkefni í nánu samstarfi við heimamenn og þar verða kynntar þessar hugmyndir að útlínu stækkaðs þjóðgarðs. Einnig verður kynnt hvernig menn sjá fyrir sér uppbyggingu í starfsmannahaldi eftir stækkun þjóðgarðs og munu sveitarstjórnir, ráðuneyti og aðrir hagsmunaaðilar fara yfir drög að reglum þar um og verður unnið úr því á næstu vikum. Formlega ætti undirbúningi að ljúka í haust segir Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri og á fundinum verður gerð grein fyrir starfsmannahaldi eftir að stækkun þjóðgarðsins verður staðfest. Lesa meira
 
Víkingaskipið Íslendingur á Jökulsárlóni @ebe

Notaleg tilfinning að sigla undir seglum um Jökulsárlón - 08.09.2004 September

Í þessu augnabliki erum við að leggja af stað til Þorlákshafnar með víkingaskipið Íslending á flutningabíl, sagði Gunnar Marel Eggertsson í gærkvöldi þegar fréttamaður vefsins hafði samband við hann í gærkvöldi og spurði frétta frá Jökulsárlóni. Myndatökur fyrir Bjólfskviðu sem teknar voru Jökulsárlóni, fóru fram á mánudaginn. Þetta var erfitt en mjög gaman segir Gunnar, það bar svo brátt að með að Íslendingur yrði hérna í kvikmyndatöku svo tími var ekki alveg nógur til að undirbúa skipið fyrir þetta og það þurfti meiri vinnu en maður reiknaði með í upphafi til að allt gengi upp. Þetta gekk upp og allar tímasetningar líka, allir voru mjög ánægðir með hvað myndatakan gekk vel. Gunnar segir að óneitanlega hafi það verið ánægjulegt og notaleg tilfinning að sigla Íslendingi undir seglum um Jökulsárlón. Lesa meira
 
Helena með 7 punda laxinn

Gaman að fara í silungs- og laxveiði - 07.09.2004 September

Það fer ekki á milli mála að Hornfirðingar eiga orðið sína eigin laxveiðiá, Laxá í Nesjum og það er stutt fyrir heimafólk að skreppa, að fengnu leyfi auðvitað og ná sér í soðið. Helena Ingvadóttir er ein þeirra sem hefur afskaplega gaman af að fara í silungs og laxveiði og hefur farið á veiðar með pabba sínum síðan hún var smá stelpa. Hún er nýkomin úr veiðiferð í Laxá þar sem hún fékk tvo laxa, sá stóri var sjö pund og 73 cm, veiddur á flugu (þýska snældu) og tók um 10 mínútur að ná honum á land. Ég fer mikið í veiði yfir sumarið, út um allar sveitir þar sem einhverja veiði er að hafa segir Helena, ég fer oft í Laxá sem er mjög skemmtileg veiðiá, þar er mikið af silungi og sjóbirtingi að ógleymdum laxinum. Hún hefur veitt þrjá laxa í sumar og fullt af urriðum og sjóbirtingi og ætlar að láta þessa laxveiði duga í sumar. Lesa meira
 
Jón Garðar að störfum

Nokkur umferðaróhöpp á síðustu dögum - 06.09.2004 September

Þetta hefur verið tiltölulega gott umferðar-sumar, engin alvarleg slys aðeins minni háttar eymsli, segir Jón Garðar Bjarnason lögreglumaður á Höfn. Talsvert hefur þó verið um eignatjón vegna árekstra og útafaksturs. Í gærkvöldi varð árekstur tveggja bíla, jeppa og lítillar hópferðarbíls, á Skeiðarárbrú, meiðsli voru aðeins minni háttar. Árlega verða árekstrar á Skeiðarárbrú og hafa orðið heldur fleiri í sumar en áður. Ástæðuna telur Jón Garðar aðallega vera vanmat ökumanna á aðstæðum. Á síðustu dögum hafa tvö umferðaróhöpp orðið á bílaleigubílum í nágrenni Hafnar, annað við Viðborð þar sem útlendingur missti stjórn á bílnum og lenti útaf. Hinn bíllinn valt skammt vestan við Almannaskarð eftir að hafa lent í lausamöl og fór tvær veltur, bíllinn er mikið skemmdur. Ökumaður hans var útlendingur. Í báðum þessum óhöppum slapp fólk án meiðsla. Lesa meira
 
Guðrún Kristín og María Hjördís með berjauppskeru  @Nesjaskoli

Berjaferð Nesjaskólabarna - 06.09.2004 September

Nemendur Nesjaskóla fóru í berjaferðina sína í dag, mánudag. Berjaferð er einn hluti af vettvangsferðum Nesjaskóla sem m.a. hafa það að markmiði að kynna fyrir nemendum sitt nánasta umhverfi og hvetja til útivistar og hollrar hreyfingar. Fyrirhugað var að fara ferðina fyrir helgi en sökum mikillar vætu var ferðinni frestað. Farið var inn á Heinabergsaura og tíndu krakkarnir þar heilmikið af krækiberjum í blíðskaparveðri. Lesa meira
 
Vegagerðin að Haukafelli

Unnið að vegagerð inn í Haukafelli - 06.09.2004 September

Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu vegar inn að skógræktarsvæðinu í Haukafelli á Mýrum. Skógræktarfélag Austur- Skaftafellssýslu hefur í fyrra og á þessu ári fengið styrki frá Vegagerðinni til þessara framkvæmda og vonast Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum til að hægt verði að ljúka vegaframkvæmdum inn í Haukafell á næsta ári svo fært verði öllum bílum þangað. Lokið er smíði og frágangi á sumarhúsinu sem flutt var í Haukafell í sumar nema smávegis lagfæringum við húsið að utan. Sigurður Karlsson setti húsið saman og hefur unnið í sínum frístundum í sumar við að fullgera það, gert það alveg meiriháttar flott segir Rannveig. Ekki hefur verið gróðursett neitt í Haukafelli í sumar en á öllu svæðinu hér hafa verið settar niður um 50-60 þúsund plöntur og talsvert er eftir að gróðursetja í haust. Mjög góður vöxtur hefur verið í öllum trjágróðri og ræktun gengið vel. Lesa meira
 
Frá busavígslu FAS 2004

Vaselín og hvítlauksduft í hárið - 03.09.2004 September

Hluti af því að byrja í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er að nýnemar (busar) þurfa að ganga í gegnum busavígslu og dagurinn í dag er einmitt busavígsludagurinn. Nýnemar þurftu að mæta í skólann í morgun með poka af pasta og smjör sem þau þurftu að hafa á sér til hádegis. Um leið og þau mættu fóru þau í “makeup” sem var vaselín og hvítlauksduft í hárið, klædd í sérstakan busabúning, málað á þeim andlitið og þau mökuð út af mygluðum mat og þá voru þau tilbúinn í slaginn. Nema hvað, þau þurftu að ganga afturábak til hádegis. Þau héldu í Miðbæ þar sem var sungið og fugladansinn dansaður fyrir gesti og gangandi. Á opna svæðinu vestan megin við FAS þurftu þau síðan að ganga í gegnum þrautir eins og sjá má í þjálfunarbúðum hermanna. Þrautirnar voru að hlaupa í gegnum dekkjabraut, skríða í gegnum vatn og drullu sem var undir fiskineti, klifra upp vegg og renna sér niður í fiskikar sem var fullt af vatni og klaka, þaðan þurftu þau að fara “Slipp and Slide” eins og stjórnendur vígslunnar kalla það en það er að renna sér á blautu plasti. Lesa meira
 
Víkingaskipið Íslendingur við Jökulsárlón @ebe

Víkingaskipið Íslendingur á Jökulsárlóni - 03.09.2004 September

Hluti kvikmyndarinnar Bjólfskviðu verður tekinn á Jökulsárlóni og mun þar víkingaskipið Íslendingur verða notað í upptökunni sem mun fara fram í byrjun næstu viku. Víkingaskipið kom með flutningabíl frá Reykjanesbæ og var tekið af bílnum í gær. Skipið verður síðan sjósett, eða sett á lónið áður en upptökur hefjast. Skipstjóri, smiður skipsins og okkar helsti sérfræðingur í víkingaskipum Gunnar Marel Eggertsson fylgir skipinu og er því staddur á Jökulsárlóni þessa stundina. Gunnar segir að það sé stefnt að því að setja skipið á flot í kvöld, en aðstæður á lóninu séu mjög sérstakar og þurfi því vel að vanda til verksins. Eins og alþjóð er kunnugt um þá sigldi Gunnar og áhöfn hans Íslendingi til Bandaríkjanna og Kanada með viðkomu á Grænlandi árið 2000. Lesa meira
 
Ingibjörg Karlsdóttir að sortera fötin sem fara frá Hafnarskóla í söfnunina

Opið hús á morgun – fatasöfnun - 03.09.2004 September

Fyrsta opna hús vetrarins hjá Rauða kross Íslands Hornafjarðardeildar verður á morgun laugardag frá kl. 15–17 í húsnæði deildarinnar að Hafnarbraut 40. Þar verður sérstök áhersla lögð á fatasöfnun Rauða krossins og þar verður tekið á móti fötum og skófatnaði. Deildin stefnir að því að hafa opið hús reglulega í vetur þar sem allir eru velkomnir að koma og fræðast um starfsemi Rauða krossins og taka þátt í starfsemi hans. Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:, hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins, hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi, hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis, hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðinni L12 að Laugarvegi 12. Fötum er úthlutað til þeirra sem á þurfa að halda alla miðvikudaga klukkan 9:00-14:00 í Fataflokkurnarstöð Rauða krossins að Gjótuhrauni 7, Hafnarfirði. Lesa meira
 
Forsíðumyndin á nýju ljóðabókinni eftir Torhildi Hólm Torfadóttur á Gerði

Glompa, ný ljóðabók eftir Torhildi Hólm Torfadóttur á Gerði - 02.09.2004 September

Það er ekki á hverjum degi sem út kemur bók eftir heimamenn hvað þá heldur ljóðabók. Torhildur Hólm Torfadóttir á Gerði í Suðursveit réðst þó í þetta stórvirki með dyggri aðstoð dóttur sinnar Þóru Bjarndísar. Þær söfnuðu saman hluta af þeim ljóðum sem Torfhildur hefur samið á síðustu áratugum og bjuggu til prentunar og nú er bókin komin út og ber nafnið Glompa. Torfhildur Hólm stundar búskap á Gerði en í frítíma sínum sest hún stundum niður og skrifar hugrenningar sínar í bundnu máli. Hún segist þó sjálf helst semja sé hún beðin um það því eins og flestir sem þekkja til bústarfa og vinnu húsmæðra í sveitum vita, þá er þar lítið um lausan tíma. Lesa meira
 
Francesco Bandarin ásamt eiginkonu sinni í Skaftafelli (Mynd Ragnar Frank)

Framkvæmdastjóri heimsminjaskrifstofu Unesco í Skaftafelli - 02.09.2004 September

Síðastliðinn sunnudag komu í Þjóðgarðinn Skaftafell framkvæmdastjóri heimsminjaskrifstofu Unesco, Francesco Bandarin ásamt konu sinni. Í för með honum var einnig Sigurður Þráinsson í Umhverfisráðuneytinu. Um síðustu helgi afhenti Bandarin,við formlega athöfn, Birni Bjarnasyni formanni Þingvallanefndar skjal þess efnis að Þingvellir hafi verið samþykktir á heimsminjaskrána. Það sem við vorum að gera þarna á sunnudaginn, sagði Sigurður, var að sýna framkvæmdastjóranum Skaftafell og Ragnar Frank þjóðgarðsvörður fræddi hann um sögu og náttúru staðarins. Bandarin var afskaplega hrifinn af Skaftafelli, náttúrunni og sérstaklega Skeiðarárjökli, þeirri landmótun sem fylgir jöklinum, jökulöldunum, hreyfingum jökulsins, eldsumbrotum og hlaupum. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn.

Þokkalegur afli hjá smábátunum. - 01.09.2004 September

Með nýju fiskveiðiári lifnar yfir athafnalífinu við höfnin og þeir sem fyrir nokkru voru búnir með sínar aflaheimildir geta nú byrjað aftur. Ólafur Einarsson hjá Hornafjarðarhöfn segir að fjöldi smábáta sé svipaður og verið hefur, um 20 bátar . Nokkrir þeirra fóru á sjó í síðustu viku og var afli þokkalegur, samt óþarflega mikið af ufsa í aflanum. Netabátar hafa lítið veitt en góð veiði hefur verið í snurvoð. Einn bátur er á humar en þar er engin veiði núna. Sjómenn kvarta yfir mikilli drullu eða þörungum í sjónum á miðunum út af Hornafirði. Ólafur segir að þetta sé óvenju mikið og öll troll fyllist af þessum óþvera. sem ekki er vitað hvað er eða af hverju. Helst er haldið að þetta sé eitthvað þessari hlýu veðráttu í sumar að kenna og einnig að lengi hefur verið lítil hreifing sjávar. Lesa meira
 
Solla í Bestfiski með einn vænan.

Byggðakvótinn næsta fiskveiðiár 3.200 þorskígildi - 01.09.2004 September

Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar sem haldinn var sl. fimmtudag voru kynnt lög um stjórn fiskveiða með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í sambandi við úthlutun byggðakvóta. fyrir fiskveiðiárið 2004/2005 en þá á að ráðstafa allt að 3.200 þorskígildum. Það er ekki nokkur leið fyrir okkur að reyna að rökstyðja umsókn um úthlutun, segir Halldóra B Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, við fórum yfir þetta á fundinum og ef á að sækja um byggðakvóta núna þarf að uppfylla ákveðin skilyrði eða rök fyrir umsókninni og þau eru bara ekki til staðar hér. Samdráttar í sjávarútvegi og eru háð veiðum og vinnslu á botnfiski. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica