Glompa, ný ljóðabók eftir Torhildi Hólm Torfadóttur á Gerði
Það er ekki á hverjum degi sem út kemur bók eftir heimamenn hvað þá heldur ljóðabók. Torhildur Hólm Torfadóttir á Gerði í Suðursveit réðst þó í þetta stórvirki með dyggri aðstoð dóttur sinnar Þóru Bjarndísar. Þær söfnuðu saman hluta af þeim ljóðum sem Torfhildur hefur samið á síðustu áratugum og bjuggu til prentunar og nú er bókin komin út og ber nafnið Glompa. Torfhildur Hólm stundar búskap á Gerði en í frítíma sínum sest hún stundum niður og skrifar hugrenningar sínar í bundnu máli. Hún segist þó sjálf helst semja sé hún beðin um það því eins og flestir sem þekkja til bústarfa og vinnu húsmæðra í sveitum vita, þá er þar lítið um lausan tíma.
Suðursveitungar og nærsveitungar þekkja vel til kveðskapar Torfhildar því varla hefur verið haldin sú skemmtun í Suðursveit að ekki sé einhver kveðskapur eftir Torfhildi, eða Tollu eins og hún er oftast kölluð, með á dagskránni og þá oftast eitthvað í léttari kantinum.
Í Glompu er þó meira af alvarlegri kveðskap en allt er það þó í bland. Til að mynda eru þar nafnavísur eins og þessi;
Ein er snót ef að er gætt
allra stúlkna prýði.
Hennar nafna sefur sætt
sveipuð vetrarhýði.
Geti nú hver sem betur getur hvaða nafn er verið að semja um.
Ljóðabókina Glompu er hægt að nálgst hjá höfundi í síma 478 1064, hjá Þórgunni, 478 2009 eða 4781004 og á Reykjavíkursvæðinu hjá Þóru Bjarndísi í síma 696 7898





Skrifa athugasemd