September
Ingibjörg Karlsdóttir að sortera fötin sem fara frá Hafnarskóla í söfnunina
Ingibjörg Karlsdóttir að sortera fötin sem fara frá Hafnarskóla í söfnunina

03.09.2004 September

Opið hús á morgun – fatasöfnun

Fyrsta opna hús vetrarins hjá Rauða kross Íslands Hornafjarðardeildar verður á morgun laugardag frá kl. 15–17 í húsnæði deildarinnar að Hafnarbraut 40. Þar verður sérstök áhersla lögð á fatasöfnun Rauða krossins og þar verður tekið á móti fötum og skófatnaði. Deildin stefnir að því að hafa opið hús reglulega í vetur þar sem allir eru velkomnir að koma og fræðast um starfsemi Rauða krossins og taka þátt í starfsemi hans. Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:, hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins, hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi, hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis, hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðinni L12 að Laugarvegi 12. Fötum er úthlutað til þeirra sem á þurfa að halda alla miðvikudaga klukkan 9:00-14:00 í Fataflokkurnarstöð Rauða krossins að Gjótuhrauni 7, Hafnarfirði.

Árlega berast um 500 tonn af notuðum fötum til Rauða krossins. Það sem ekki er nýtt beint til hjálparstarfa er selt. Um er að ræða mikilvæga tekjuöflun Rauða krossins sem skilar sér beint í alþjóðlega neyðaraðstoð. Þó að allt komi að notum, líka skór og tuskur, þá er hreinn og heillegur fatnaður, sem vel er frá gengið, sérstaklega verðmætur. Á síðustu árum hefur fatnaður frá Íslandi veitt þúsundum manna í löndum eins og Rússlandi, Úsbekistan, Lesótó og Gambíu kærkomna hlýju. Vetrarföt eru send á köld svæði en léttari fatnaður til hlýrri svæða. Mikilvægt er að fatnaður sem sendur er sem neyðaraðstoð sé við hæfi og misbjóði ekki virðingu þeirra sem hjálparinnar njóta. Því biðjum við fólk að ganga vel frá því sem gefið er með því að hafa hann heilan og hreinan. Að lokum má minna á að 12. september verður Þjóðahátíð haldin á Egilsstöðum. Væntanlega verður hún óvenju stór í sniðum að þessu sinni vegna aukins fjölda fólks á Austurlandi sem er af erlendu bergi brotið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica