September
Frá busavígslu FAS 2004
Frá busavígslu FAS 2004

03.09.2004 September

Vaselín og hvítlauksduft í hárið

Hluti af því að byrja í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er að nýnemar (busar) þurfa að ganga í gegnum busavígslu og dagurinn í dag er einmitt busavígsludagurinn. Nýnemar þurftu að mæta í skólann í morgun með poka af pasta og smjör sem þau þurftu að hafa á sér til hádegis. Um leið og þau mættu fóru þau í “makeup” sem var vaselín og hvítlauksduft í hárið, klædd í sérstakan busabúning, málað á þeim andlitið og þau mökuð út af mygluðum mat og þá voru þau tilbúinn í slaginn. Nema hvað, þau þurftu að ganga afturábak til hádegis. Þau héldu í Miðbæ þar sem var sungið og fugladansinn dansaður fyrir gesti og gangandi. Á opna svæðinu vestan megin við FAS þurftu þau síðan að ganga í gegnum þrautir eins og sjá má í þjálfunarbúðum hermanna. Þrautirnar voru að hlaupa í gegnum dekkjabraut, skríða í gegnum vatn og drullu sem var undir fiskineti, klifra upp vegg og renna sér niður í fiskikar sem var fullt af vatni og klaka, þaðan þurftu þau að fara “Slipp and Slide” eins og stjórnendur vígslunnar kalla það en það er að renna sér á blautu plasti.

Þessari þolraun er ekki lokið fyrir busana því að í kvöld verður hin eiginlega vígsla og fer hún fram í gömlu rústunum í Ægissíðu og ekki fæst upp gefið hvað bíður þeirra þar. Eftir þá vígslu geta nýnemarnir farið að láta sér hlakka til næsta árs þar sem þau munu verða í öðru hlutverki þ.e. láta nýja nemendur ganga í gegnum slíkt hið sama eða eitthvað enn skemmtilegra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica